Komstu hingað af Facebook eða Instagram?
Hlekkir þar opnast í vafra inni í appinu, og þaðan er ekki hægt að setja síðu á heimaskjáinn. Opnaðu síðuna fyrst í venjulega vafranum:
- Ýttu á punktana efst í horninuÞrír punktar, ⋯ á iPhone og ⋮ á Android.
- Veldu „Open in browser“Eða „Open in Safari“ / „Open in Chrome“. Síðan opnast þá í Safari eða Chrome, og þá má fylgja leiðbeiningunum hér fyrir neðan.
iPhone
Notaðu Safari.
- Opnaðu golfid.is/tol/kaddyinn og ýttu á ••• neðst til hægriVið hliðina á slóðinni. Veldu svo „Share“ (Deila). Í eldri iOS er Deila-táknið, ferningur með ör upp, neðst fyrir miðju. Gerðu þetta á síðu Kaddýsins, ekki á þessari síðu.
- Veldu „Add to Home Screen“Ef það sést ekki strax: „View More“ og skruna niður.
- AddHafðu kveikt á „Open as Web App“ og ýttu á „Add“Kaddýinn birtist á heimaskjánum með sínu eigin tákni, á fyrstu lausu síðunni.
Android
Notaðu Chrome. Stundum býður Chrome þetta sjálfur neðst á skjánum.
- Opnaðu golfid.is/tol/kaddyinn og ýttu á punktana þrjáEfst í hægra horninu.
- Veldu „Install app“ eða „Add to Home screen“Heitið fer eftir útgáfu Chrome.
- OKStaðfestuKaddýinn birtist á heimaskjánum og í forritalistanum.
Í Samsung Internet: valmyndin (☰) neðst → „Add page to“ → „Home screen“.
Ertu í tölvunni?
Skannaðu kóðann með myndavélinni í símanum. Þá opnast þessi síða þar og þú getur fylgt leiðbeiningunum.
Gott að vita
- Opnaðu völlinn einu sinni heima. Eftir það virkar Kaddýinn úti á velli þótt netsambandið detti út.
- Engin innskráning. Stillingarnar og hringirnir eru aðeins geymdir í símanum.
- Á iPhone geymir appið á heimaskjánum gögnin sér frá Safari. Ef þú hefur þegar skráð hringi í Safari: farðu í „Tölur“, ýttu á „Vista afrit“ og hladdu því svo inn í appinu.
- Uppfærist sjálfur. Nýir vellir og breytingar koma inn án þess að þú gerir neitt.