Komstu hingað af Facebook eða Instagram?
Hlekkir þar opnast í vafra inni í appinu, og þaðan er ekki hægt að setja síðu á heimaskjáinn. Opnaðu síðuna fyrst í venjulega vafranum:
- Ýttu á punktana efst í horninuÞrír punktar, ⋯ á iPhone og ⋮ á Android.
- Veldu „Open in browser“Eða „Open in Safari“ / „Open in Chrome“. Síðan opnast þá í Safari eða Chrome, og þá má fylgja leiðbeiningunum hér fyrir neðan.
iPhone
Notaðu Safari.
- Opnaðu golfid.is/tol/domarinn og ýttu á ••• neðst til hægriVið hliðina á slóðinni. Veldu svo „Share“ (Deila). Í eldri iOS er Deila-táknið, ferningur með ör upp, neðst fyrir miðju. Gerðu þetta á síðu Dómarans, ekki á þessari síðu.
- Veldu „Add to Home Screen“Ef það sést ekki strax: „View More“ og skruna niður.
- AddHafðu kveikt á „Open as Web App“ og ýttu á „Add“Dómarinn birtist á heimaskjánum með sínu eigin tákni, á fyrstu lausu síðunni.
Android
Notaðu Chrome. Stundum býður Chrome þetta sjálfur neðst á skjánum.
- Opnaðu golfid.is/tol/domarinn og ýttu á punktana þrjáEfst í hægra horninu.
- Veldu „Install app“ eða „Add to Home screen“Heitið fer eftir útgáfu Chrome.
- OKStaðfestuDómarinn birtist á heimaskjánum og í forritalistanum.
Í Samsung Internet: valmyndin (☰) neðst → „Add page to“ → „Home screen“.
Ertu í tölvunni?
Skannaðu kóðann með myndavélinni í símanum. Þá opnast þessi síða þar og þú getur fylgt leiðbeiningunum.
Gott að vita
- Opnaðu Dómarann einu sinni áður en þú ferð út á völl. Eftir það virkar hann þótt netsambandið detti út, öll 77 atvikin og staðarreglurnar.
- Veldu völlinn þinn. Undir „Meira“ velur þú völlinn, eða leyfir Dómaranum að finna hann með staðsetningu, svo staðarreglurnar birtist í úrskurðunum.
- Engin innskráning. Völlurinn, leikformið og skráð atvik eru aðeins geymd í símanum.
- Kaddýinn og Dómarinn saman á iPhone. Á iPhone hefur hvert app á heimaskjánum sína eigin geymslu, aðskilda frá Safari og frá hinum öppunum. Þá sér Dómarinn ekki hringinn sem er í gangi í Kaddýnum. Ef þú vilt skrá vítin beint á skorkortið í Kaddýnum skaltu nota báða í Safari. Á Android deila þeir gögnum hvernig sem þeir eru opnaðir.
- Uppfærist sjálfur. Ný atvik, staðarreglur fleiri valla og leiðréttingar koma inn án þess að þú gerir neitt.