Þriðjudagur 24. nóvemberSíðast uppfært 24. nóvember · kl. 06:00
Afrekskylfingar · Mótaraðirnar

Andrea jöfn í 13. sæti á Islantilla og allar þrjár á lokaúrtökumót LET

Andrea Bergsdóttir lék lokahring Islantilla Open á 76 höggum og varð jöfn í 13. sæti á pari. Hún var jöfn í öðru sæti fyrir lokadaginn og lék í síðasta ráshópi.

Pétur Örn Johnson21. nóvember 2026 kl. 13:191 mín. lestur
Ragnhildur Kristinsdóttir með Korpubikarinn á Korpúlfsstaðavelli í maí 2026. Ljósmynd: Golfklúbbur Reykjavíkur
Ragnhildur Kristinsdóttir með Korpubikarinn á Korpúlfsstaðavelli í maí 2026. Ljósmynd: Golfklúbbur Reykjavíkur

Marina Escobar Domingo frá Spáni vann mótið á átta höggum undir pari. Hún var tveimur höggum á undan Andreu eftir tvo hringi. Ragnhildur Kristinsdóttir lék lokahringinn á 71 höggi, besta hring sinn á mótinu, og lauk keppni á fimm höggum yfir pari. Hulda Clara Gestsdóttir komst ekki áfram eftir niðurskurðinn og munaði tveimur höggum.

Islantilla Open var lokamót LET Access-mótaraðarinnar. Sjö efstu á stigalistanum fá fullan keppnisrétt á LET-mótaröðinni 2027 en engin íslensku kvennanna komst í þann hóp. Hulda Clara varð í níunda sæti á fyrsta ári sínu í atvinnumennsku, Ragnhildur í 22. sæti og Andrea í 23. sæti. Kylfingar í 8.–32. sæti fara beint á lokaúrtökumót LET í desember og eru þær allar þrjár í þeim hópi.

Hulda Clara vann Czech Ladies Challenge í júní. Ragnhildur varð önnur á Allegria Ladies Open í maí og Andrea jöfn í þriðja sæti á Lavaux Ladies Open í september.

LET AccessIslantilla OpenAndrea BergsdóttirHulda Clara GestsdóttirRagnhildur Kristinsdóttir
Fylgstu með

Kylfingar sem þú fylgir birtast efst á forsíðunni með nýjustu stöðu.

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt