Golfklúbbur Akureyrar lokar Klöppum alveg út vikuna
Golfklúbbur Akureyrar hefur lokað æfingasvæðinu Klöppum við Jaðarsvöll alveg frá og með mánudeginum 19. október og út vikuna. Hingað til hefur svæðið verið opið síðdegis og á kvöldin þrátt fyrir framkvæmdirnar.

Á svæðinu milli 100 og 150 metra skiltanna er verið að skipta um jarðveg og leggja gervigras. Með lokuninni geta starfsmenn klúbbsins unnið við verkið allan daginn í stað þess að byrja hvern morgun á því að tína bolta og hreinsa svæðið.
Framkvæmdirnar hófust 14. október og áttu að taka um tvær vikur. Golfklúbbur Akureyrar ætlar að tilkynna hvenær Klappir verða opnaðar á ný um leið og það liggur fyrir.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Golfklúbbur Þorlákshafnar vill færa reikningsárið til 1. nóvember
- Afrekskylfingar · ÁhugamennNýtt
Veigar og Heiða Rakel bæði í 7. sæti eftir fyrsta hring
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Hulda Clara á teig í Vidago og Veigar jafn í 7. sæti í Tennessee
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Hero World Challenge: Scheffler og Matsuyama með, Woods óákveðinn
- Afrekskylfingar · ÁhugamennNýtt
Gunnlaugur Árni lauk titilvörninni á Fallen Oak á 13 yfir pari
- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Rory McIlroy keppir í Dubai og sækist eftir fimmta sigrinum þar

