Gjafabréf í golfhermi: verð og hvar þau fást fyrir jólin
Gjafabréf í golfhermi fást hjá flestum golfhermastöðum á höfuðborgarsvæðinu. Golfsvítan selur þau nú með 30% afslætti og Nesvellir gefa allt að 20% afslátt eftir upphæð.

Golfið kannaði 8. nóvember verð á gjafabréfum hjá golfhermastöðunum, sem flestir selja þau á netinu.
Mestur er afslátturinn hjá Golfsvítunni. Þar fást gjafabréf frá 10.000 upp í 100.000 krónur og nú eru þau seld með 30% afslætti; 10.000 króna bréf kostar því 7.000 krónur. Bréfið gildir á stöðum Golfsvítunnar í Egilshöll, Hafnarfirði og Ögurhvarfi í Kópavogi, en gjafabréf í Golfsvítuna á Selfossi þarf að kaupa sérstaklega. Klukkutíminn á kvöldin kostar 5.690 krónur hjá Golfsvítunni og 10.000 króna bréf dugar því í rúma eina og hálfa klukkustund.