Miðvikudagur 21. októberSíðast uppfært 21. október · kl. 19:14
Golf á Íslandi · Klúbbarnir

Grafarholtsvelli lokað fyrir veturinn á laugardag

Golfklúbbur Reykjavíkur lokar Grafarholtsvelli laugardaginn 24. október. Frá og með deginum í dag eru vellir GR aðeins opnir félagsmönnum.

Ritstjórn Golfsins21. október 2026 kl. 17:131 mín. lestur
Flöt og glompur á Grafarholtsvelli. Ljósmynd: Golfklúbbur Reykjavíkur
Flöt og glompur á Grafarholtsvelli. Ljósmynd: Golfklúbbur Reykjavíkur

Á Korpúlfsstaðavelli verða Sjórinn og Landið opin áfram á meðan veður og ástand vallarins leyfa, en Ánni var lokað 12. október. Vipp- og púttsvæðið í Skeifunni á Korpu er líka opið enn um sinn. Nýju púttflötinni þar hefur verið lokað og sömuleiðis öllum salernum á báðum völlunum. Grafarkotsvöllur og vipp- og púttsvæðið við Bása eru þegar lokuð fyrir veturinn.

Í tilkynningu klúbbsins segir að þegar frystir á nóttunni megi búast við lokunum með stuttum fyrirvara. Lokanir séu tilkynntar í GolfBox og bókaðir rástímar geti fallið niður. Básar eru komnir á vetrartíma og Thorsvöllur er opinn allt árið.

GRGrafarholtsvöllurKorpúlfsstaðavöllurVetrarlokun
Fréttabréf Golfsins

Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.

Aðeins fréttabréfið, ekkert annað. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt
  1. Afrekskylfingar · Mótaraðirnar

    Hulda Clara Gestsdóttir leikur lokahringinn í Vidago

  2. Heimsgolfið · LIV Golf

    Talor Gooch hættir við Hong Kong Open