Strandvöllurinn Spey Bay til sölu – óskað eftir tilboðum yfir 1,5 milljónum punda
LinksDAO, bandarískt golfsamfélag sem safnaði fé með sölu NFT-skírteina, hefur auglýst Spey Bay-völlinn á norðausturströnd Skotlands til sölu. Óskað er eftir tilboðum yfir 1,5 milljónum punda.

Spey Bay er 18 holu strandvöllur (e. links) þar sem áin Spey fellur í Moray-fjörð. Ben Sayers hannaði hann árið 1907 að beiðni hertogans af Gordon. Völlurinn er par 70 og 5.860 jardar.
LinksDAO keypti völlinn vorið 2023 fyrir talsvert hærra verð en ásett verð, sem var 750.000 pund. Samkvæmt Golf Business News komst völlurinn í ár á lista yfir 100 bestu velli Skotlands. LinksDAO segir flesta félagsmenn sína búa í Bandaríkjunum og vill nú einbeita sér að verkefnum nær heimahögunum.
Breska fyrirtækið HMH annast söluna. Vellinum fylgja klúbbhús með líkamsræktaraðstöðu og verslun, æfingasvæði og stæði fyrir húsbíla og hjólhýsi.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Umfjöllun · GolfferðirNýtt
Ódýrasta golfferðin með flugi kostar 279.900 krónur
- Fréttaskot · DP World TourNýtt
Hillier fór holu í höggi í Madríd og fékk rafbíl að launum
- Fréttaskot · GolfheimurinnNýtt
Torres með fjögurra högga forystu á Hainan
- Heimsgolfið · Korn FerryNýtt
Holt efstur í Virginíu og Hammer fallinn niður fyrir línuna
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Mitchell og Bridgeman jafnir í Japan, Holt efstur í Virginíu og Torres stingur af
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Mitchell og Bridgeman jafnir á toppnum í Yokohama
