Chiara Tamburlini heldur forystunni á Indian Open
Chiara Tamburlini er tveimur höggum á undan Pranavi Urs og Magdalenu Simmermacher eftir tvo hringi á Hero Women's Indian Open. Ojaswini Saraswat, 13 ára, er yngsti kylfingur í sögu mótsins sem kemst áfram eftir niðurskurð.

Tamburlini lék á 71 höggi og er á sex undir pari. Hún hóf leik á 10. holu og fékk þar fugl. Síðan lék hún 15 holur í röð á pari en sló í vatn á 8. holu, sem er par 5, og fékk skolla. Höggið vann hún aftur með fugli á 9. holu, síðustu holu dagsins. „Þetta var talsvert meira stressandi en í gær,“ sagði Tamburlini, sem var efst eftir fyrsta hring.
Urs, sem keppir á heimavelli, lék á 70 höggum þótt hún væri lasin. Þær Tamburlini verða saman í ráshópi á laugardag. Camille Chevalier frá Frakklandi fékk örn á 18. holu þegar hún sló beint í holu og er jöfn tveimur öðrum í 4. sæti á þremur undir pari.
Niðurskurðurinn miðast við níu högg yfir pari og Alexandra Swayne frá Bandarísku Jómfrúaeyjum er á mörkunum með eina holu óleikna. Leik var hætt vegna myrkurs og hún lýkur hringnum á laugardagsmorgun.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · LPGANýtt
Ryu Hae-ran fékk tvo erni og er efst á BMW Ladies Championship
- Heimsgolfið · GolfheimurinnNýtt
Matthew Cheung efstur á Hong Kong Open eftir 62 högg
- Afrekskylfingar · KlúbbaliðNýtt
Golfklúbbur Reykjavíkur keppir á EM golfklúbba í Bordeaux
- Umfjöllun · GolfferðirNýtt
Alicante í nóvember á 224.900 krónur með flugi
- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Antoine Rozner náði Casey Jarvis á Genesis Championship
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Chandler Blanchet efstur á Bermúda eftir 62 högg