Jeeno Thitikul vann á Havaí – fjórði sigurinn á árinu
Jeeno Thitikul frá Taílandi vann Lotte-meistaramótið á LPGA-mótaröðinni á 21 höggi undir pari, þremur höggum á undan Inu Yoon. Hún hefur nú unnið jafnmörg mót á árinu og Nelly Korda, fjögur.

Jeeno Thitikul heldur áfram að safna titlum. Taílenska stjarnan vann LOTTE-meistaramótið á Hoakalei-vellinum á Oahu á Havaí á sunnudag og var það fjórði sigur hennar á LPGA-mótaröðinni á árinu og sá ellefti á ferlinum.
Thitikul lék lokahringinn á 68 höggum, fjórum undir pari, og lauk keppni á samtals 267 höggum, 21 höggi undir pari. Ina Yoon frá Suður-Kóreu, sem lék með henni í ráshóp, varð önnur á 18 undir pari. Japaninn Miyu Yamashita varð þriðja á 17 undir pari og Bandaríkjakonan Auston Kim fjórða á 16 undir pari.
Tveggja högga sveifla á 17. holu
Lokadagurinn var vindasamur og spennan mikil undir lokin. Thitikul sló upphafshöggið í vatn á par-4 16. holunni, fékk skramb og missti niður tveggja högga forskot.
Hún svaraði strax. Á 17. holu setti hún niður um sex metra pútt fyrir fugli á meðan Yoon sló í vatn af teig og fékk skolla. Þar með var Thitikul aftur komin með tveggja högga forystu og fugl á par-5 lokaholunni innsiglaði sigurinn.
Jöfn Korda á toppnum
Thitikul er í öðru sæti heimslistans og með sigrinum náði hún Nelly Korda, sem er efst á heimslistanum og hefur einnig unnið fjögur mót á tímabilinu. Hana vantar nú aðeins einn sigur til að jafna Ariyu Jutanugarn sem sigursælasti taílenski kylfingurinn í sögu LPGA-mótaraðarinnar. Samkvæmt Golf Channel er Thitikul, sem er 23 ára, jafnframt komin í fjórða sæti yfir tekjuhæstu kylfinga í sögu mótaraðarinnar.
Fram undan eru fjögur mót í Asíu og hefst sú törn á Buick LPGA Shanghai í Kína dagana 15.–18. október.
Golffréttir dagsins í pósthólfið alla virka morgna.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · GolfheimurinnNýtt
Ár í Ryder-bikarinn: Furyk boðar breytingar og segir Bandaríkin lítilmagnann
- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
LIV Golf fær 300 milljónir dala og leikmenn eiga að eignast meirihlutann
- Fréttaskot · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur jafn í 5. sæti eftir fyrsta hring á Gotlandi
- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Jon Rahm dregur sig úr Opna spænska – á von á fjórða barninu
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Schauffele ver titilinn í Japan þar sem baráttan um keppnisréttinn harðnar
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Scott vann annað mótið í röð, Alker í liði heimsins og golfið snýr aftur til Djúpavogs