WTGL hafin og lið Michelle Wie West vann New York 3–1
Los Angeles Golf Club, lið Michelle Wie West, vann New York Golf Club 3–1 í fyrsta leik WTGL, nýrrar golfhermadeildar kvenna, í Flórída á sunnudag.

Leikið var í SoFi Center í Palm Beach Gardens. Í liði New York eru meðal annarra Lydia Ko, Rose Zhang og Linn Grant, sem á titil að verja á The ANNIKA-mótinu í vikunni. Í hljóðnema Ko heyrðist hún furða sig á bakspuna sem hermirinn gaf höggi hennar með níujárni.
Í deildinni eru fimm lið, hvert með fimm kylfinga, og þrír leika fyrir hvert lið í hverjum leik. Jeeno Thitikul og Lexi Thompson leika með Motor City Golf Club, sem mætir Los Angeles kl. 1 aðfaranótt miðvikudags að íslenskum tíma. Úrslitaleikirnir fara fram 22. og 23. desember. Þriðja tímabil TGL, karladeildarinnar, hefst 27. desember.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Marco Penge vann RSM Classic í fjögurra manna bráðabana
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Úr klúbbunum: Suðurnesjamenn kjósa formann og vefur Dalbúa liggur niðri
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara, Ragnhildur og Andrea á lokaúrtökumót LET í Marrakesh
- Heimsgolfið · VikanNýtt
Golfvikan: Nýtt tímabil DP World Tour hefst í Sydney
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Jeeno Thitikul vann CME þriðja árið í röð og Korda bíður enn
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Gunnar Þórarinsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Suðurnesja, látinn