Miðvikudagur 7. októberSíðast uppfært 7. október · kl. 16:25
Íslenskt golf · Klúbbarnir

Róbert hafði betur gegn bróður sínum í bændaglímu GSG

Bræðurnir Ásgrímur og Róbert Pálssynir stýrðu sitt hvoru liðinu í bændaglímu Golfklúbbs Sandgerðis á Kirkjubólsvelli. Lið Róberts vann en Ásgrímur varð stigameistari sumarsins.

Ritstjórn Golfsins7. október 2026 kl. 16:251 mín. lestur
Ljósmynd · Klúbbarnir

Bændaglíma Golfklúbbs Sandgerðis var leikin á Kirkjubólsvelli laugardaginn 26. september og lauk þar með mótasumri klúbbsins. Bændur dagsins voru bræðurnir Ásgrímur og Róbert Pálssynir og lið Róberts fór með sigur af hólmi, samkvæmt vef klúbbsins.

Að glímunni lokinni voru meistarar sumarsins krýndir. Ásgrímur tók við bikarnum sem stigameistari GSG 2026 og Bjarni Benediktsson varð bikarmeistari eftir sigur á Elvari Bjarka Friðrikssyni í úrslitaleiknum. Atli Þór Karlsson, formaður mótanefndar, afhenti verðlaunin.

Golfklúbbur SandgerðisKirkjubólsvöllurBændaglíma
Fréttabréf Golfsins

Golffréttir dagsins í pósthólfið alla virka morgna.

Aðeins fréttabréfið, ekkert annað. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt