KlúbbarnirKári sjálfkjörinn formaður Odds og fjögur keppa um tvö stjórnarsæti
Þrjár konur eru meðal fjögurra frambjóðenda til aðalstjórnar Golfklúbbsins Odds. Þær þrjár konur sem sitja í stjórninni gefa ekki kost á sér aftur á aðalfundinum 6. desember.

Framboðsfrestur til stjórnar Golfklúbbsins Odds rann út á hádegi sunnudaginn 22. nóvember og Kári H. Sölmundarson er einn í kjöri til formanns. Hann er því sjálfkjörinn til eins árs.
Í tvö sæti aðalmanna til tveggja ára bjóða sig fram Árný Davíðsdóttir, Elfa Björk Björgvinsdóttir, Hákon Jónsson og Unnur Helga Kristjánsdóttir. Jafnmörg keppa um tvö sæti varamanna til eins árs: Ágúst Valgeirsson, Ásdís Arna Gottskálksdóttir, Stefán Rúnar Dagsson og Þorsteinn Gíslason.
Af konunum sem hætta eru tvær í aðalstjórn og ein í varastjórn, eins og Golfið greindi frá 12. nóvember. Aðalfundurinn hefst kl. 11 í golfskálanum á Urriðavelli 6. desember. Þar verða einnig greidd atkvæði um tillögu um að lög klúbbsins kveði á um jöfn kynjahlutföll í stjórn.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Lífið í golfinu · FréttirNýtt
Peter Finch fær boð á DP World Tour en er utan 3.000 efstu á heimslista
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Scheffler getur orðið kylfingur ársins fimmta árið í röð
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Árgjöld hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar hækka um innan við 2,5%
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Félagar í Golfklúbbi Sandgerðis orðnir 420 á afmælisárinu
- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Cameron Smith segist nánast þurfa sigur til að komast aftur á PGA-mótaröðina
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Úr klúbbunum: Formannsefni á Flúðum og netárás á vef GHG

