Þriðjudagur 24. nóvemberSíðast uppfært 24. nóvember · kl. 06:00
Golf á Íslandi · Klúbbarnir

Allar konurnar hætta í stjórn Odds á aðalfundinum 6. desember

Konurnar þrjár í stjórn Golfklúbbsins Odds gefa ekki kost á sér aftur. Á aðalfundi 6. desember verður lögð fram tillaga um jafnan hlut kvenna og karla í stjórn.

Pétur Örn Johnson12. nóvember 2026 kl. 14:471 mín. lestur
Morgunsól yfir Ljúflingi, níu holu velli Golfklúbbsins Odds í Garðabæ, í júlí 2023. Ljósmynd: Golfklúbburinn Oddur
Morgunsól yfir Ljúflingi, níu holu velli Golfklúbbsins Odds í Garðabæ, í júlí 2023. Ljósmynd: Golfklúbburinn Oddur

Aðalfundur Golfklúbbsins Odds verður haldinn í golfskálanum á Urriðavelli sunnudaginn 6. desember kl. 11. Kosið verður um formann til eins árs, tvo aðalmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs. Kári Sölmundarson formaður gefur kost á sér áfram.

Berglind Rut Hilmarsdóttir og Giovanna Steinvör Cuda hætta sem aðalmenn og Guðrún Símonardóttir sem varamaður. Ágúst Valgeirsson gefur aftur kost á sér sem varamaður. Í stjórn Odds eru formaður, fjórir aðalmenn og tveir varamenn, og sitja varamenn alla stjórnarfundi.

Á fundinum verður lögð fram tillaga að lagabreytingu sem á að tryggja jafnan hlut kvenna og karla í stjórn. Verði hún samþykkt tekur hún gildi að fundi loknum. Á Facebook-síðu klúbbsins segir að stefnt sé að því að ná þessu markmiði strax við kjörið í desember og eru konur sérstaklega hvattar til að bjóða sig fram. Þau sem hafa hug á framboði eru beðin að hafa samband við klúbbinn.

Golfklúbburinn OddurUrriðavöllurAðalfundur

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt