MótaraðirnarDagbjartur fékk fjóra skolla á síðustu sjö holunum í Álaborg
Dagbjartur Sigurbrandsson var samtals á fjórum höggum undir pari eftir níu holur á lokahring Road to Europe Final en varð jafn í 12. sæti á einu höggi undir pari. Hann lauk tímabilinu í 24. sæti stigalista Nordic Golf League.

Á seinni níu holunum í Álaborg fékk Dagbjartur skolla á 12. holu, fugl á 13. og skolla á 14., 15. og 18. holu. Hann lék lokahringinn á 72 höggum.
Jerry Ji frá Hollandi lék báða síðustu hringina á 64 höggum og vann á 15 höggum undir pari, fjórum höggum á undan Svíanum David Lundgren, sem endaði efstur á stigalistanum. Fimm efstu menn stigalistans fá keppnisrétt á HotelPlanner-mótaröðinni 2027. Martin Leth Simonsen úr Aalborg Golf Klub hélt 5. sæti stigalistans, 4.329 stigum á undan Norðmanninum Sebastian Eidsæther Syr, sem varð jafn Dagbjarti í 12. sæti mótsins.
Hlynur Bergsson lék 3. holuna, sem er par 5, á níu höggum á lokahringnum en síðustu fimmtán holurnar á þremur höggum undir pari. Hann varð jafn í 20. sæti á tveimur höggum yfir pari og lauk tímabilinu í 29. sæti stigalistans.
Dagbjartur keppir næst á 2. stigi úrtökumóts DP World Tour á Spáni 29. október til 1. nóvember.
Kylfingar sem þú fylgir birtast efst á forsíðunni með nýjustu stöðu.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara jöfn í 14. sæti í Calatayud
- Umfjöllun · GolfferðirNýtt
Costa Ballena í maí: tólf nætur á 394.900 krónur
- Heimsgolfið · GolfheimurinnNýtt
Saudi International frestað eftir árásir á Ríad
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Saudi International frestað og fjórir Íslendingar á lokahring
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Will Zalatoris í þriðju bakaðgerðina og keppir ekki árið 2027
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Ragnhildur höggi frá niðurskurðinum í Calatayud


