Mánudagur 12. októberSíðast uppfært 12. október · kl. 15:15
Heimsgolfið · DP World Tour

DP World Tour hleypir engum LIV-kylfingi að árið 2027

Kylfingar sem semja við LIV Golf fyrir næsta tímabil fá ekki aðild að DP World Tour árið 2027. Það gæti kostað Tyrrell Hatton sæti í liði Evrópu í Ryder-bikarnum á Adare Manor.

Ritstjórn Golfsins12. október 2026 kl. 11:052 mín. lestur
Tyrrell Hatton í Ryder-bikarnum 2025. Ljósmynd: Bryan Berlin / Wikimedia Commons, CC BY-SA 4.0
Tyrrell Hatton í Ryder-bikarnum 2025. Ljósmynd: Bryan Berlin / Wikimedia Commons, CC BY-SA 4.0

Enginn kylfingur sem skráir sig til leiks í endurreistu LIV-deildinni fær aðild að DP World Tour árið 2027. Guy Kinnings, framkvæmdastjóri mótaraðarinnar, greindi frá þessu í viðtali við BBC Sport á mánudag.

„Leikmenn verða að velja,“ sagði Kinnings (í lauslegri þýðingu) og bætti við að þeir sem ekki vildu hlíta reglum mótaraðarinnar ættu ekki að sækjast eftir aðild að henni.

Þar með heyrir sögunni til fyrirkomulag sem verið hefur við lýði í ár. Í febrúar fengu átta LIV-kylfingar skilyrt leyfi til að halda keppnisrétti sínum á DP World Tour og keppa þar án þess að sæta sektum eða banni. Nú þurfa leikmenn að gefa upp hvar þeir ætla að leika þegar gengið er frá aðild fyrir næsta ár. Samkvæmt BBC Sport missir hver sá aðild sína þegar í stað sem segist ekki ætla í LIV en gerir það samt.

Ryder-bikarinn undir

Mestu skiptir ákvörðunin fyrir Ryder-bikarinn. Aðeins kylfingar með aðild að DP World Tour geta leikið fyrir hönd Evrópu, og næst verður keppt á Adare Manor á Írlandi í september 2027. Tyrrell Hatton, Victor Perez og Tom McKibbin eru allir með aðild að DP World Tour og samning við LIV og þurfa nú að gera upp hug sinn. Hatton hefur verið í liði Evrópu í tveimur síðustu keppnum undir stjórn Lukes Donalds.

Jon Rahm hefur þegar hafnað nýju LIV-deildinni og búist er við að hann leiki á DP World Tour á næsta ári. Joaquin Niemann og Thomas Pieters standa verr að vígi, því að hvorugur þeirra hefur keppnisrétt á DP World Tour. Þeir þyrftu að reyna fyrir sér á úrtökumótum eða semja um boðssæti á einstökum mótum.

LIV Golf er í greiðslustöðvun samkvæmt 11. kafla bandarískra gjaldþrotalaga og BC Partners hefur heitið allt að 300 milljónum dala til að endurreisa deildina fyrir árið 2027. Frestur leikmanna til að semja við nýju deildina rennur út 25. október. Samkvæmt The Independent hafa Laurie Canter, Adrian Meronk og David Puig, sem fengu skilyrt leyfi í ár, hins vegar frest fram til 16. nóvember til að svara DP World Tour.

DP World TourLIV GolfRyder-bikarinnGuy KinningsTyrrell HattonJon Rahm
Fréttabréf Golfsins

Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.

Aðeins fréttabréfið, ekkert annað. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt
  1. Heimsgolfið · Úrslit helgarinnar

    Úrslit helgarinnar: Brennan, Forrest og Yamashita unnu