Þriðjudagur 24. nóvemberSíðast uppfært 24. nóvember · kl. 06:00
Golf á Íslandi · Klúbbarnir

Par á næstu vann VIKING-deildina hjá GM

Úrslit liggja fyrir í innanfélagsmótaröðum Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Wenche Follaug og Jónas Yamak unnu VITAgolf-mótaröðina og liðið Par á næstu VIKING-deildina.

Pétur Örn Johnson7. október 2026 kl. 18:201 mín. lestur
Æfingasvæði Golfklúbbs Mosfellsbæjar úr lofti. Ljósmynd: Golfklúbbur Mosfellsbæjar
Æfingasvæði Golfklúbbs Mosfellsbæjar úr lofti. Ljósmynd: Golfklúbbur Mosfellsbæjar

Par á næstu lagði Snúðana 2,5–0,5 í úrslitaleik VIKING-deildar Golfklúbbs Mosfellsbæjar í sumar. Kóróna varð í þriðja sæti eftir sigur á Stutt í grínið og þessi fjögur lið halda sæti sínu í deildinni á næsta ári án umspils.

Í VITAgolf-mótaröðinni sigraði Wenche Follaug í kvennaflokki og Jónas Yamak í karlaflokki. Í báðum flokkum munaði aðeins þremur stigum á sigurvegaranum og þeim sem varð annar. Þorsteinn Hallgrímsson vann Titleist-holukeppnina eftir sigur á Eyþóri Ágústi Kristjánssyni í úrslitum og Elín Gróa Karlsdóttir hafði betur gegn Jónu Sigríði Halldórsdóttur í kvennaflokki.

Verðlaunin verða afhent á aðalfundi GM í byrjun desember.

Golfklúbbur MosfellsbæjarInnanfélagsmót

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt