Golfið skilar samfélaginu rúmum 31 milljarði króna á ári
Ný rannsókn bendir til þess að hver króna sem lögð er í golfíþróttina skili sér nær tvöfalt til baka – meðal annars í heilbrigðiskerfinu.
Samfélagslegt virði golfíþróttarinnar á Íslandi er metið á 31,22 milljarða króna á ári. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem Golfsamband Íslands (GSÍ) vann í samstarfi við KPMG og finnska íþróttavísindafélagið (Finnish Society of Sport Sciences).
Í rannsókninni var beitt svokallaðri SROI-greiningu (e. Social Return on Investment). Aðferðin er notuð til að meta í krónum talið hvaða áhrif tiltekin starfsemi hefur á heilsu, vellíðan og félagslega þátttöku fólks.
Nær tvöfalt til baka
Samkvæmt niðurstöðunum er um 15,7 milljörðum króna varið til golfíþróttarinnar á ári hverju. Á móti skilar hún samfélaginu um 31,2 milljörðum – nær tvöfaldri þeirri upphæð.
Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, segir í umfjöllun sambandsins að samfélagslegt virði golfsins sé nú metið á rúman 31 milljarð króna á ári.
Fjórir milljarðar sparast í heilbrigðiskerfinu
Einn stærsti einstaki liðurinn snýr að heilsu. Talið er að golfiðkun spari ríkinu um fjóra milljarða króna á ári í heilbrigðiskostnaði.
Kylfingar 19 ára og eldri hreyfðu sig að meðaltali í 310 mínútur á viku frá maí til ágúst 2025. Það er vel yfir ráðleggingum um 150–300 mínútna hreyfingu á viku fyrir fullorðna.
Íþrótt sem fylgir fólki fram eftir aldri
Í rannsókninni er bent á að golfið sameini hreyfingu, útivist og félagsleg tengsl. Sérstaka athygli vekur hve lengi eldri kylfingar halda áfram að stunda íþróttina, sem styður við heilbrigða öldrun.
Næst þegar einhver spyr hvort þú sért enn og aftur á leiðinni á völlinn geturðu svarað með góðri samvisku: Ég er að spara ríkinu peninga.
Golffréttir dagsins í pósthólfið alla virka morgna.