Þriðjudagur 24. nóvemberSíðast uppfært 24. nóvember · kl. 06:00
Golf á Íslandi · Klúbbarnir

GR leggur til að félagsaðild verði öllum frjáls en biðlistinn haldist

Stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur leggur fyrir aðalfund 3. desember tillögu um að allir geti gengið í klúbbinn. Biðlistinn næði þá aðeins til réttarins að leika á völlum GR. Klúbburinn á líka að verða félag til almannaheilla.

Pétur Örn Johnson19. nóvember 2026 kl. 19:411 mín. lestur
Tíunda flötin á Korpúlfsstaðavelli og klúbbhúsið á Korpúlfsstöðum, þar sem aðalfundurinn verður haldinn. Ljósmynd: Golfklúbbur Reykjavíkur
Tíunda flötin á Korpúlfsstaðavelli og klúbbhúsið á Korpúlfsstöðum, þar sem aðalfundurinn verður haldinn. Ljósmynd: Golfklúbbur Reykjavíkur

Samkvæmt núgildandi lögum Golfklúbbs Reykjavíkur ákveður stjórnin hámarksfjölda félagsmanna og þeir sem sækja um umfram hann fara á biðskrá. Samkvæmt tillögu stjórnarinnar að nýrri 3. grein verður félagsaðild hins vegar frjáls öllum sem styðja tilgang félagsins og sækja um skriflega. Stjórnin ákveður áfram hámarksfjölda þeirra sem mega leika og æfa á völlum og æfingasvæðum GR og þeir sem eru umfram hann fara á biðskrá. Fólk á biðskrá velur sjálft hvort það gengur strax í klúbbinn og greiðir fullt árgjald og inntökugjald eða bíður utan hans þar til röðin kemur að því.

Í athugasemd stjórnarinnar segir að breytingin komi til móts við tilmæli ÍSÍ frá því fyrr á árinu um að félagsaðild skuli vera öllum frjáls og að aðeins ytri aðstæður megi takmarka þátttöku. Golfklúbbur Þorlákshafnar hefur einnig endurskoðað lög sín eftir erindi ÍSÍ og þar verður kosið um ný lög þriðjudaginn 24. nóvember.

Breytingar á 1. og 21. grein eiga að gera GR að félagi til almannaheilla samkvæmt lögum nr. 110/2021. Í 21. grein, um slit félagsins, segir að hrein eign renni þá til ÍBR til eflingar golf- og íþróttastarfs í Reykjavík og að óheimilt sé að úthluta eignum eða fjármunum félagsins til félagsmanna.

Aðalfundurinn verður á 2. hæð klúbbhússins við Korpúlfsstaðavöll fimmtudaginn 3. desember kl. 18. Kosið verður um formann til eins árs, þrjá stjórnarmenn til tveggja ára og þrjá varamenn. Framboð þurfa að berast kjörnefnd í síðasta lagi 26. nóvember.

Golfklúbbur ReykjavíkurKorpúlfsstaðavöllurAðalfundurÍSÍ

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt