KlúbbaliðGR í 8. sæti á Evrópumóti golfklúbba í Bordeaux
Golfklúbbur Reykjavíkur lauk Evrópumóti golfklúbba á Cabot Bordeaux á 14 höggum yfir pari og varð í 8. sæti af 23 klúbbum. Lokahringurinn kostaði sveitina þrjú sæti.

Eftir tvo hringi var sveitin í 5. sæti ásamt tveimur öðrum klúbbum. Tvö bestu skor af þremur töldu hvern dag. Sveitin lék lokahringinn á 149 höggum, sjö höggum yfir pari, og lauk keppni á 440 höggum samtals. Jóhann Frank Halldórsson lék best GR-inga á lokahringnum, á 74 höggum.
Böðvar Bragi Pálsson átti besta hring sveitarinnar í Frakklandi, 70 högg á föstudag, og lauk keppni á níu höggum yfir pari. Jóhann Frank var á 11 höggum yfir pari og Arnór Tjörvi Þórsson á 12. GR vann sér þátttökurétt á mótinu með sigri í 1. deild karla á Íslandsmóti golfklúbba á Strandarvelli á Hellu í ágúst. Sveitin lagði GKG 5–0 í úrslitaleiknum. Í fyrra varð GR í 6. sæti á sama velli.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Yuto Katsuragawa jafnaði vallarmetið og er efstur í Kóreu
- Heimsgolfið · GolfheimurinnNýtt
Fjórir jafnir fyrir lokadaginn á Hong Kong Open
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Ryu Hae-ran með fjögurra högga forskot fyrir lokadaginn í Haenam
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Kensei Hirata og Chandler Blanchet efstir á Bermúda
- Afrekskylfingar · KlúbbaliðNýtt
GR í 5. sæti fyrir lokadag Evrópumóts golfklúbba
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
GR í 5. sæti í Bordeaux, Hirata og Blanchet efstir á Bermúda
