KlúbbarnirGurrý Jónsdóttir slær inn á flöt á par 4-holum með 25 í forgjöf
Gurrý Jónsdóttir hefur slegið alla leið inn á flöt á par 4-holum, meðal annars á Urriðavelli. Í Seinni níu sagði hún frá lengsta höggi sínu, átta tíma hring á Spáni og dræver sem brotnaði í golfhermi.

Lengsta högg Gurrýjar Jónsdóttur sem hún hefur mælt var 263 metrar. Það sló hún á Spáni við bestu aðstæður. Hún er með 25 í forgjöf og hefur oftar en einu sinni slegið alla leið inn á flöt á par 4-holu, til dæmis á 2. holu Urriðavallar, þar sem brekkan hjálpaði til, og á Hamarsvelli í Borgarnesi.
Gurrý, sem er snyrtifræðingur og stýrir hlaðvarpi, var gestur Loga Bergmanns og Jóns Júlíusar Karlssonar í nýjasta þætti Seinni níu, sem kom út á mánudag. Hún ólst upp í Garðabæ, um 600 metra frá velli GKG, og foreldrar hennar fóru með hana í golf þegar hún var tíu ára. Afi hennar, Kolbeinn Pétursson, er 92 ára og keppti að hennar sögn á Íslandsmótinu árið 1966. Eftir unglingsárin lagði hún kylfurnar að mestu á hilluna, en í janúar 2022 stofnaði vinkona hennar golfhópinn Dís, og Gurrý byrjaði aftur og fór strax í kennslu. Besti hringur hennar er 95 högg.
Hún og sambýlismaður hennar, Egill Einarsson, fara utan í golf á um sex vikna fresti, oftast til Spánar. Í nýlegri ferð þangað var hún eina konan í hópi fimm karla, því parferðin sem stóð til varð að strákaferð. Hún lék 99 holur á sex dögum, þar af 36 holur einn daginn. Furðulegasti hringur hennar var líka á Spáni, með vinkonu hennar, Silju Rán, sem var nýbyrjuð og hleypti sjö hollum fram fyrir þau. Hringurinn tók átta klukkutíma og það var komið kvöld þegar honum lauk.
Gurrý segist hafa mikið keppnisskap. Eitt sinn í golfhermi barði hún drævernum í gólfið eftir lélegt högg, svo hann brotnaði. Það ætlar hún ekki að gera aftur.
Gurrý er með um 14.000 fylgjendur á Instagram og setur þar inn myndbönd úr golfinu. Hún segist lítið sía það sem hún birtir, því fólk hafi mest gaman af því sem fari úrskeiðis. Glompurnar óttast hún mest þessa dagana, því henni hefur gengið illa að koma boltanum upp úr þeim.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Marco Penge vann RSM Classic í fjögurra manna bráðabana
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Úr klúbbunum: Suðurnesjamenn kjósa formann og vefur Dalbúa liggur niðri
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara, Ragnhildur og Andrea á lokaúrtökumót LET í Marrakesh
- Heimsgolfið · VikanNýtt
Golfvikan: Nýtt tímabil DP World Tour hefst í Sydney
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Jeeno Thitikul vann CME þriðja árið í röð og Korda bíður enn
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Gunnar Þórarinsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Suðurnesja, látinn

