Hitt vann lokamót Korn Ferry og Blades Brown fær PGA-kortið 19 ára
Austin Hitt vann lokamót Korn Ferry-mótaraðarinnar í Virginíu á 20 höggum undir pari. Hinn 19 ára Blades Brown varð annar og verður yngsti kylfingur í sögu mótaraðarinnar sem vinnur sér keppnisrétt á PGA-mótaröðinni.

Austin Hitt lék lokahringinn á 66 höggum á The Federal Club í Glen Allen og vann lokamót Korn Ferry-mótaraðarinnar á 264 höggum, 20 höggum undir pari. Hann var höggi á eftir Blades Brown fyrir sunnudaginn en endaði tveimur höggum á undan honum. Alistair Docherty varð þriðji á 17 höggum undir pari eftir að hafa leikið lokahringinn á 65 höggum.
Fyrir Hitt var meira en verðlaunaféð í húfi. Hann var í 22. sæti stigalistans þegar mótið hófst, utan við þá 20 sem fá keppnisrétt á PGA-mótaröðinni, en fór upp í 6. sæti listans. Þetta var 78. mót hans á Korn Ferry-mótaröðinni og nú fær hann í fyrsta sinn kort á PGA-mótaröðina.
Yngri en Jason Day
Brown lék annan hringinn á 61 höggi, meðal annars með tveimur örnum í röð, og hélt forystunni fram á lokadaginn. Þá lék hann á 69 höggum og náði ekki að halda aftur af Hitt, en annað sætið nægði honum til að fara úr 14. sæti stigalistans í það 9. Brown, sem er 19 ára og fjögurra mánaða, verður yngsti kylfingurinn sem kemst af Korn Ferry-mótaröðinni upp á PGA-mótaröðina. Fyrra metið átti Jason Day, sem átti fáeina daga í tvítugt þegar hann tryggði sér kortið árið 2007.
Brown gerðist atvinnumaður 17 ára í desember 2024. Hann hefur leikið ellefu mót á PGA-mótaröðinni í ár með tímabundna aðild og besti árangur hans var þriðja sæti á Puerto Rico Open.
Hammer missti af kortinu
Baráttan um síðustu sætin réðst á lokadeginum. Davis Lamb lék á 68 höggum, fór úr 23. sæti í það 20. og hreppti síðasta kortið. Cole Hammer, sem var kominn niður fyrir 20. sætið eftir fyrsta hring, lék lokahringinn á 73 höggum og endaði í 22. sæti. Ben Kohles, sem var í 19. sæti fyrir mótið en keppti á sama tíma í Japan, féll niður í 23. sæti.
Ross Steelman endaði efstur á stigalistanum, þrátt fyrir 72 högg á sunnudag, og fær auk kortsins þátttökurétt á Players-mótinu og Opna bandaríska meistaramótinu árið 2027. Ian Holt, sem var með forystu eftir fyrsta hring, deildi 6. sætinu og missti þar með af þriðja sigri sínum, sem hefði fært honum keppnisrétt á PGA-mótaröðinni strax í haust.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Fréttaskot · GolfheimurinnNýtt
Van der Vight vann Hainan Open eftir 62 högg á laugardag
- Fréttaskot · GolfheimurinnNýtt
Yamashita vann í Kóreu eftir vallarmet á lokahringnum
- Umfjöllun · GolfhermarNýtt
Vetur í golfhermi kostar frá 32.500 upp í 93.600 krónur á mann
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Brennan vann í Yokohama eftir að Bridgeman og Mitchell misstigu sig
- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Forrest vann Opna spænska með fugli á síðustu holunni
- Íslendingar erlendis · MótaraðirnarNýtt
Andrea ein í gegnum niðurskurðinn á Terre Blanche – Hulda Clara niður í 8. sæti stigalistans
