Þriðjudagur 24. nóvemberSíðast uppfært 24. nóvember · kl. 06:00
Golf á Íslandi · Klúbbarnir

Hlíðavelli lokað og golfsumrinu líklega lokið hjá GM

Golfklúbbur Mosfellsbæjar lokaði Hlíðavelli í dag og gerir ráð fyrir að golftímabilinu hjá klúbbnum sé þar með lokið. Frost var í nótt og meira er í kortunum.

Pétur Örn Johnson9. nóvember 2026 kl. 09:411 mín. lestur
Braut og glompa á golfvelli Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Ljósmynd: Golfklúbbur Mosfellsbæjar
Braut og glompa á golfvelli Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Ljósmynd: Golfklúbbur Mosfellsbæjar

GM greindi frá lokuninni á Facebook-síðu sinni í morgun.

Leikið hafði verið á Hlíðavelli frá 28. október, þegar hann var opnaður á ný í hlýindum. Hinum velli klúbbsins, Bakkakotsvelli í Mosfellsdal, var lokað 14. október.

Þegar síðast fréttist voru Korpúlfsstaðavöllur, Hvaleyrarvöllur, Nesvöllur og Mýrin enn opin félagsmönnum. Stöðuna á öllum völlum landsins má sjá á vallasíðunni.

Golfklúbbur MosfellsbæjarHlíðavöllurHaustgolf

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt