KlúbbarnirKiðjabergsvöllur valinn besti golfvöllur landsins þriðja árið í röð
Kiðjabergsvöllur í Grímsnesi er besti golfvöllur Íslands árið 2026 að mati World Golf Awards. Völlurinn hlaut sömu viðurkenningu árin 2024 og 2025.

Guðmundur Ásgeirsson, formaður Golfklúbbs Kiðjabergs (GKB), tók við viðurkenningunni fyrir hönd klúbbsins á verðlaunahátíð World Golf Awards, sem haldin var á Madinaty Golf Club í Egyptalandi.
„Sjálfboðaliðar, starfsfólk og stuðningsfólk klúbbsins hafa öll lagt sitt af mörkum og án þeirra væri þetta ekki mögulegt,“ segir Guðmundur í fréttatilkynningu frá klúbbnum. „Þessi viðurkenning hvetur okkur til að halda áfram á sömu braut og gera völlinn enn betri.“
„Vallarstarfsmenn GKB hafa unnið af miklum metnaði og ástríðu og þessi árangur er okkur öllum mikið ánægjuefni,“ segir Guðmundur Fannar Vigfússon, framkvæmdastjóri klúbbsins.
World Golf Awards voru nú veitt í 13. sinn. Þau eru hluti af World Travel Awards, sem hafa verið veitt fyrir ferðaþjónustu um allan heim frá árinu 1993. Kosið var frá ársbyrjun til októberloka. Atkvæði greiddu bæði almenningur og fólk sem starfar við golf og ferðaþjónustu.
Kiðjabergsvelli var lokað fyrir veturinn 12. október og hann verður opnaður aftur í vor.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Marco Penge vann RSM Classic í fjögurra manna bráðabana
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Úr klúbbunum: Suðurnesjamenn kjósa formann og vefur Dalbúa liggur niðri
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara, Ragnhildur og Andrea á lokaúrtökumót LET í Marrakesh
- Heimsgolfið · VikanNýtt
Golfvikan: Nýtt tímabil DP World Tour hefst í Sydney
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Jeeno Thitikul vann CME þriðja árið í röð og Korda bíður enn
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Gunnar Þórarinsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Suðurnesja, látinn

