Þriðjudagur 24. nóvemberSíðast uppfært 24. nóvember · kl. 06:00
Golf á Íslandi · GSÍ

Landsliðshópur GSÍ: 23 kylfingar og fyrsta æfingaferðin til Flórída

Landsliðshópur GSÍ fyrir veturinn er skipaður 23 kylfingum úr sjö klúbbum. Í lok nóvember fer GSÍ í fyrsta sinn með landsliðskylfingana sem stunda nám við bandaríska háskóla í æfingaferð til Flórída.

Pétur Örn Johnson6. nóvember 2026 kl. 14:412 mín. lestur
Hluti nýja landsliðshópsins. Efri röð frá vinstri: Kristján Karl Guðjónsson, Björn Breki Halldórsson, Halldór Jóhannsson, Óliver Elí Björnsson, Skarphéðinn Egill Þórisson, Máni Freyr Vigfússon og Gunnar Þór Heimisson. Neðri röð frá vinstri: Embla Hrönn Hallsdóttir, Elva María Jónsdóttir, Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir og Elísabet Þóra Ólafsdóttir. Ljósmynd: GSÍ

Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ, og Andri Þór Björnsson, aðstoðarafreksstjóri, völdu hópinn. Fyrstu æfingar vetrarins voru í lok október á Nesvöllum, inniaðstöðu Nesklúbbsins á Seltjarnarnesi.

„Við hefjum tímabilið töluvert fyrr en undanfarna vetur og munum standa fyrir fleiri æfingum og bættum stuðningi,“ segir Ólafur Björn á vef GSÍ. Hópurinn hittist einu sinni í viku fram að áramótum. Eftir áramót taka við æfinga- og keppnisferðir til útlanda og æfingabúðir landsliðsins hér heima.

Landsliðskylfingarnir sem eru í námi vestanhafs fara saman til Flórída í lok nóvember. Í byrjun janúar heldur allur hópurinn til La Finca á Spáni, þriðja veturinn í röð, og um páskana er ferðinni heitið til Ítalíu á tvö alþjóðleg mót.

Tíu konur og þrettán karlar eru í hópnum. Sjö eru úr GKG, fimm úr Keili og fjórir úr Golfklúbbi Akureyrar:

LandsliðiðGSÍGunnlaugur Árni SveinssonPerla Sól Sigurbrandsdóttir

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt