KlúbbarnirFélagsmenn í Öndverðarnesi felldu tillögu stjórnar um árgjöld
Aðalfundur Golfklúbbs Öndverðarness samþykkti í staðinn 10% hækkun og fullt árgjald verður 127.600 krónur. Ingi Gunnar Þórðarson tók við formennsku af Guðmundi Pálmasyni.

Tæplega 150 félagsmenn mættu á aðalfund Golfklúbbs Öndverðarness í golfskálanum á laugardag. Fundurinn felldi bæði tillögu stjórnar um árgjöld næsta árs og tillögu hennar um 15.000 króna golfbílagjald, en samþykkti að árgjöldin hækkuðu um 10%. Golfbílagjaldið verður 5.000 krónur.
Fullt árgjald fyrir 26–69 ára fer úr 116.000 krónum í 127.600 og skálagjaldið, sem allir félagsmenn 26 ára og eldri greiða, úr 9.000 í 10.000 krónur. Sjötugir og eldri greiða 89.320 krónur, 16–25 ára 51.040, öryrkjar 76.560 og börn yngri en 15 ára 24.750. Gjöldunum er skipt á tvo gjalddaga, 1. febrúar og 1. apríl 2027.
Ingi Gunnar Þórðarson, sem sat í varastjórn síðasta starfsár, var einn í kjöri til formanns. Gísli Björgvinsson og Berglind Helgadóttir voru kjörin í aðalstjórn með 79 atkvæðum hvort af 140 greiddum en Jón Ólafur Bergþórsson og Þorvarður G. Hjaltason í varastjórn. Úr aðalstjórn fara Guðlaug Þorgeirsdóttir eftir 14 ár, Guðmundur Pálmason eftir 12 og Gígja Hrönn Eiðsdóttir eftir tvö.
Breyting á 3. grein laganna var líka samþykkt: aðalfundur ákveður hámarksfjölda félaga miðað við aðstöðu og þeir sem sækja um umfram hann fara á biðlista. Áður var ákveðið að félagar 26 ára og eldri yrðu að hámarki 780 og sú ákvörðun stendur. Félagar eru nú fleiri og engir nýir verða teknir inn í klúbbinn, sem rekur Öndverðarnesvöll, fyrr en ríflega 30 hafa sagt sig úr klúbbnum. Ný stjórn setur reglur um biðlistann.
Lítið var rætt um skýrslu stjórnar og ársreikninginn, sem var samþykktur samhljóða. Einn fundarmanna gagnrýndi aftur á móti nýtt merki klúbbsins og sagði múrskeiðina í því líkjast frekar tertuspaða.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Marco Penge vann RSM Classic í fjögurra manna bráðabana
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Úr klúbbunum: Suðurnesjamenn kjósa formann og vefur Dalbúa liggur niðri
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara, Ragnhildur og Andrea á lokaúrtökumót LET í Marrakesh
- Heimsgolfið · VikanNýtt
Golfvikan: Nýtt tímabil DP World Tour hefst í Sydney
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Jeeno Thitikul vann CME þriðja árið í röð og Korda bíður enn
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Gunnar Þórarinsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Suðurnesja, látinn

