MótaraðirnarSigurbjörn Þorgeirsson 13. á meistaramóti eldri kylfinga í Portúgal
Sigurbjörn Þorgeirsson varð í 13. sæti af um áttatíu keppendum á Portúgalsmeistaramóti eldri kylfinga á Golf do Estoril. Fjórir Íslendingar tóku þátt.

Sigurbjörn lék hringina þrjá á 72, 73 og 72 höggum, samtals á tíu höggum yfir pari. Guðmundur Rúnar Hallgrímsson varð jafn tveimur öðrum í 20.–22. sæti á þrettán höggum yfir pari, Frans Páll Sigurðsson í 57. sæti og Helgi Birkir Þórisson í 74. sæti. Mótið fór fram í byrjun nóvember. Kylfingur.is greindi frá úrslitunum.
Eftir mótið léku fjórmenningarnir á Oitavos Dunes við Cascais og rákust þar á Cristiano Ronaldo í golfkennslu á æfingasvæðinu. Sigurbjörn tók sveiflu Ronaldos upp á myndband. „Það er ljóst að hann á nokkuð í land en við skulum samt gefa honum það að vera efnilegur,“ sagði hann við kylfing.is.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Marco Penge vann RSM Classic í fjögurra manna bráðabana
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Úr klúbbunum: Suðurnesjamenn kjósa formann og vefur Dalbúa liggur niðri
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara, Ragnhildur og Andrea á lokaúrtökumót LET í Marrakesh
- Heimsgolfið · VikanNýtt
Golfvikan: Nýtt tímabil DP World Tour hefst í Sydney
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Jeeno Thitikul vann CME þriðja árið í röð og Korda bíður enn
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Gunnar Þórarinsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Suðurnesja, látinn

