MótaraðirnarÍsland hefur leik á heimsmeistaramóti stúlkna í Kanada
Þrjár íslenskar stúlkur keppa á Brampton-vellinum í Ontario, þar sem 24 lið frá 23 þjóðum taka þátt.

Íslenska stúlknalandsliðið er komið til Kanada, þar sem heimsmeistaramót stúlkna fer fram á Brampton-vellinum í Ontario dagana 30. september til 3. október.
Fyrir Íslands hönd keppa Bryndís Eva Ágústsdóttir (GA), Embla Hrönn Hallsdóttir (GKG) og Lilja Maren Jónsdóttir (GA). Með liðinu í Kanada er Andri Þór Björnsson, aðstoðarafreksstjóri GSÍ.
Leikinn er 72 holu höggleikur, 18 holur á dag, bæði í einstaklings- og liðakeppni. Í liðakeppninni telja tvö bestu skor hvers liðs á hverjum hring. Kanada sendir tvö lið.
Þetta er fjórða árið í röð sem Ísland tekur þátt. Besti árangurinn til þessa náðist í fyrra, þegar liðið varð jafnt í 16. sæti. Bryndís Eva var í því liði en Embla Hrönn og Lilja Maren keppa nú á mótinu í fyrsta sinn. Sigurvegarinn í einstaklingskeppninni fær þátttökurétt á CPKC Women’s Open á LPGA-mótaröðinni árið 2027.
Kylfingar sem þú fylgir birtast efst á forsíðunni með nýjustu stöðu.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Marco Penge vann RSM Classic í fjögurra manna bráðabana
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Úr klúbbunum: Suðurnesjamenn kjósa formann og vefur Dalbúa liggur niðri
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara, Ragnhildur og Andrea á lokaúrtökumót LET í Marrakesh
- Heimsgolfið · VikanNýtt
Golfvikan: Nýtt tímabil DP World Tour hefst í Sydney
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Jeeno Thitikul vann CME þriðja árið í röð og Korda bíður enn
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Gunnar Þórarinsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Suðurnesja, látinn

