Good Good: vinahópurinn sem byggði upp golfveldi á YouTube
Félagarnir byrjuðu að taka upp golfhringi sína árið 2020 og eru með yfir tvær milljónir áskrifenda. Nú, eftir mesta áfall í sögu hópsins, leika þeir golf í öllum 50 ríkjum Bandaríkjanna á 50 dögum.
Fyrsta myndbandið í nýjustu þáttaröð Good Good kom út 28. september og hefur fengið meira en 1,5 milljónir áhorfa. Hugmyndin er einföld: golfhringur í hverju ríki Bandaríkjanna, 50 ríki á 50 dögum og nýtt myndband á hverjum degi. Ferðin hófst í Alaska og á tíunda degi var hópurinn kominn til Nebraska.
Þeim sem ekki þekkja til skal sagt að Good Good er vinahópur sem leikur golf fyrir framan myndavélina: holukeppni, liðakeppni og áskoranir, með meira gríni en tæknilegum útskýringum.
Úr vinahópi í fyrirtæki
Rætur hópsins ná aftur til áranna upp úr 2010, þegar Garrett Clark, Stephen Castaneda, Matt Scharff og Micah Morris léku mikið golf saman. Clark byrjaði að taka upp hringina og hélt úti rásinni GM Golf ásamt Morris, frænda sínum. Árið 2020, skömmu eftir að heimsfaraldurinn skall á, fékk hann vinina til að stofna Good Good. Frægasta atvik fyrstu áranna varð í júlí 2021, þegar Scharff fór holu í höggi á par 4 holu.
Með tímanum bættust betri kylfingar í hópinn. Brad Dalke varð annar á bandaríska áhugamannameistaramótinu 2016 og lék á Masters-mótinu árið eftir. Sean Walsh lék með golfliði Gonzaga-háskóla og síðar sem atvinnumaður á PGA-mótaröðunum í Kanada og Rómönsku Ameríku.
Fljótlega varð þetta meira en YouTube-rás. Good Good selur eigin golffatnað, hefur styrkt atvinnukylfinga á borð við Joel Dahmen og Beau Hossler og haldið sjónvarpsmót í samstarfi við NBC og Golf Channel. Árið 2025 sótti fyrirtækið í fyrsta sinn fé til utanaðkomandi fjárfesta, alls 45 milljónir dala. Meðal þeirra var framleiðslufyrirtæki Peytons Mannings. Sama ár varð til systurrásin Good Good Girls.
Auglýsingin
Hinn 20. ágúst birti Good Good myndband til að kynna nýjan dræver sem Callaway seldi undir merkjum beggja. Þar hrindir Clark samstarfskonu sinni, Alexis Miestowski, í jörðina þegar hún teygir sig eftir drævernum. Myndbandið var fjarlægt samdægurs en fór víða á samfélagsmiðlum. Það átti að vera skopstæling, en margir lásu út úr því ofbeldi gegn konum.
Afleiðingarnar létu ekki á sér standa. Callaway viðurkenndi að hafa samþykkt myndbandið fyrir birtingu, sleit þriggja ára samstarfi 27. ágúst og hét einni milljón dala til samtaka sem berjast gegn ofbeldi á konum. Good Good lét af hlutverki aðalstyrktaraðila móts á PGA-mótaröðinni í Austin í Texas, sem verður leikið 12.–15. nóvember undir nafninu Austin Championship. Golf Channel hætti við nýja þáttaröð Big Break með Good Good og stórar verslanir á borð við Dick’s Sporting Goods og Target tóku fatnað hópsins úr hillum.
Clark baðst afsökunar í átta mínútna myndbandi og kallaði þetta, í lauslegri þýðingu, verstu auglýsingu sem um getur. Hann starfar áfram hjá fyrirtækinu. Hinn 2. september hættu hins vegar forstjórinn Matt Kendrick og Joe Flannery, forseti fyrirtækisins. Nahid Giga, einn fyrstu fjárfestanna og stjórnarmaður, tók tímabundið við starfi forstjóra.
50 ríki á 50 dögum
Ferðin um Bandaríkin er fyrsta stóra verkefni hópsins eftir hneykslið. Hvert ríki fær einkunn á kvarðanum 0–100 og af fyrstu átta er Alaska efst með 90,5. Fatnaðurinn sem ætlaður var mótinu í Austin er nú seldur í nafni ferðarinnar, beint á vef fyrirtækisins.
Standist áætlunin lýkur ferðinni um miðjan nóvember, á svipuðum tíma og mótið í Austin fer fram án nafns Good Good.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Lífið í golfinu · Myndband vikunnarNýtt
Peter Finch missti fimm högga forskot en vann Ryan Ruffels á lokaholunni
- Fréttaskot · GolfheimurinnNýtt
Lið Bretlands og Írlands vann PGA-bikarinn í fyrsta sinn síðan 2017
- Fréttaskot · KlúbbarnirNýtt
Guðrún og Jón Halldór efst á mótaröð Keilis fyrir 65 ára og eldri
- Fréttaskot · DP World TourNýtt
Chacarra efstur í Madríd þrátt fyrir brotna tá
- Fréttaskot · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur jafn í 6. sæti á Gotlandi
- Fréttaskot · GolfheimurinnNýtt
Kathy Cornelius, sigurvegari Opna bandaríska kvennamótsins 1956, látin 93 ára