KlúbbarnirÚr klúbbunum: Nýr framkvæmdastjóri Leynis og FootJoy-meistarar GOS
Viktor Elvar Viktorsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Golfklúbbur Selfoss hefur birt úrslit FootJoy-mótaraðarinnar, en í 15 mótum hennar í sumar voru 395 skráningar.

Viktor Elvar Viktorsson tók fimmtudaginn 12. nóvember við starfi framkvæmdastjóra Golfklúbbsins Leynis, sem rekur Garðavöll á Akranesi. Rakel Óskarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri, vinnur með honum út mánuðinn og fylgir ársreikningnum úr hlaði á aðalfundi Leynis miðvikudaginn 25. nóvember kl. 18.
Í FootJoy-mótaröð Golfklúbbs Selfoss voru leikin 15 mót á Svarfhólsvelli í sumar, 14 holur í hverju, og giltu sjö bestu skor hvers kylfings. Ingvar Marel Hafsteinsson vann punktakeppnina á undan Sigvalda Matthíassyni og Guðmundi Á. Böðvarssyni. Gunnar Marel Einarsson var efstur í höggleik án forgjafar og Guðbjörg Guðmundsdóttir í kvennaflokki. Guðbjörg var einnig efst í flokki 55 ára og eldri, en enginn getur unnið til verðlauna í fleiri en einum flokki og því fær Svanur Geir Bjarnason verðlaunin þar. Úrslitin réðust í september. Verðlaunahafar geta sótt vinningana í inniaðstöðu GOS.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Marco Penge vann RSM Classic í fjögurra manna bráðabana
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Úr klúbbunum: Suðurnesjamenn kjósa formann og vefur Dalbúa liggur niðri
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara, Ragnhildur og Andrea á lokaúrtökumót LET í Marrakesh
- Heimsgolfið · VikanNýtt
Golfvikan: Nýtt tímabil DP World Tour hefst í Sydney
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Jeeno Thitikul vann CME þriðja árið í röð og Korda bíður enn
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Gunnar Þórarinsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Suðurnesja, látinn

