Yamashita með tveggja högga forystu í Kóreu
Miyu Yamashita frá Japan lék skollalaust á öðrum hring Aramco Korea Championship og er níu höggum undir pari þegar mótið er hálfnað.

Miyu Yamashita kom inn á 68 höggum, fjórum undir pari, á öðrum hring á New Korea Country Club og fékk engan skolla. Í gær var hún á 67 höggum og hefur nú tveggja högga forystu á mótinu, sem er hluti af LET-mótaröðinni.
Næstar koma Louise Rydqvist frá Svíþjóð, nýliði á mótaröðinni, og Sung Hyun Park frá Kóreu, sjö höggum undir pari. Park fékk örn á 17. holu með pútti utan flatar. Patricie Macková, sem var efst eftir fyrsta hring, deilir níunda sætinu með Hyo Joo Kim, sem hefur unnið mótið síðustu tvö ár.
Niðurskurðurinn miðaðist við eitt högg yfir pari og 66 kylfingar halda áfram. Þriðji hringur hefst í kvöld að íslenskum tíma og síðasti ráshópurinn fer af stað klukkan þrjú í nótt.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Fréttaskot · KlúbbarnirNýtt
Um 90 krakkar á lokahófi barna- og unglingastarfs GA
- Umfjöllun · GolfferðirNýtt
Ódýrasta golfferðin með flugi kostar 279.900 krónur
- Fréttaskot · GolfheimurinnNýtt
Strandvöllurinn Spey Bay til sölu – óskað eftir tilboðum yfir 1,5 milljónum punda
- Fréttaskot · DP World TourNýtt
Hillier fór holu í höggi í Madríd og fékk rafbíl að launum
- Fréttaskot · GolfheimurinnNýtt
Torres með fjögurra högga forystu á Hainan
- Heimsgolfið · Korn FerryNýtt
Holt efstur í Virginíu og Hammer fallinn niður fyrir línuna