MótaraðirnarFjórar íslenskar konur hefja leik á Terre Blanche á morgun
Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir leika á Terre Blanche Ladies Open í Frakklandi, fyrsta mótinu af fimm á lokaspretti LET Access.
Terre Blanche Ladies Open hefst á fimmtudag á Le Riou-vellinum í Tourrettes í Suður-Frakklandi. Leiknar eru 54 holur og fjórar íslenskar konur eru á meðal keppenda.
Hulda Clara Gestsdóttir er í 7. sæti stigalistans, síðasta sætinu sem gefur fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna 2027. „Ég myndi segja að það sé pressa,“ sagði hún í viðtali sem mótaröðin birti í dag, í lauslegri þýðingu. Ragnhildur Kristinsdóttir er í 16. sæti og Andrea Bergsdóttir í 18. sæti, en kylfingar í sætum 8–32 komast beint á lokaúrtökumót LET.
Andrea fer fyrst af stað, kl. 06:47 að íslenskum tíma, og Ragnhildur kl. 07:09 af 10. teig. Hulda Clara hefur leik kl. 11:14 og Guðrún Brá Björgvinsdóttir kl. 11:36.
Golffréttir dagsins í pósthólfið alla virka morgna.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Fréttaskot · KlúbbarnirNýtt
Nesvöllur opinn áfram en boltavélinni lokað á sunnudag
- Fréttaskot · DP World TourNýtt
Chacarra tábrotinn en leikur á heimavelli í Madríd
- Fréttaskot · MótaraðirnarNýtt
Hlynur lék á 65 höggum og Dagbjartur sjöundi fyrir lokahringinn
- Fréttaskot · KlúbbarnirNýtt
Golfskálinn á Kiðjabergi lokaður en völlurinn enn opinn
- Fréttaskot · KlúbbarnirNýtt
Jarðvinnu við stækkun golfskála Keilis á að ljúka 15. nóvember
- Fréttaskot · KlúbbarnirNýtt
Bændaglíma GR safnaði 520.500 krónum fyrir Píeta-samtökin
