Golfið í morgunTvö draumahögg hjá Oddi í Tyrklandi og LIV fær Mark King til starfa
Tveir félagar í Golfklúbbnum Oddi fóru holu í höggi í Belek á sunnudag og mánudag og LIV Golf hefur ráðið Mark King, fyrrverandi forstjóra TaylorMade, formann ráðgjafarráðs.

Ágúst Valgeirsson og Oddný Hervör Jóhannsdóttir fóru holu í höggi á Gloria Old Course í Belek, hann á sunnudag og hún á mánudag. Ágúst hefur nú þrisvar farið holu í höggi en Oddný Hervör gerði það í fyrsta sinn.
LIV Golf tilkynnti í gær að Mark King myndi setja saman ráðgjafarráð LIV og verða formaður þess. King var 34 ár hjá TaylorMade og stýrði síðar Adidas í Norður-Ameríku og svo Taco Bell. Forsvarsmenn LIV segja að LIV Golf 2.0 sé enn á áætlun. Frestur kylfinga til að semja við LIV rennur út á föstudag.
- Dómari setti bráðabirgðalögbann á framkvæmdir á East Potomac í Washington. Trump segir að vellinum verði samt lokað 15. nóvember.
- Laura Frick verður mótsstjóri Ryder-bikarsins á Hazeltine árið 2029, fyrst kvenna úr röðum PGA of America.
- Maybank Championship á LPGA-mótaröðinni hefst í Kuala Lumpur í nótt. Á morgun hefjast Mexico Open á PGA-mótaröðinni og 2. stig úrtökumótsins fyrir DP World Tour á Spáni. Þar keppa Dagbjartur Sigurbrandsson, Ragnar Már Garðarsson og Sigurður Arnar Garðarsson.
Kylfingar sem þú fylgir birtast efst á forsíðunni með nýjustu stöðu.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Básar opnaðir fyrr um helgar og vetraraðild í sölu 1. nóvember
- Afrekskylfingar · ÁhugamennNýtt
Berglind Erla jöfn í 11. sæti eftir að lokahringurinn féll niður
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
GR lokar Sjónum á Korpúlfsstaðavelli í dag
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Nesklúbburinn heldur aðalfund þriðjudaginn 24. nóvember
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Berglind Erla lýkur keppni með Keiser í Flórída í dag
- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
Graeme McDowell hættir í LIV eftir fjögur ár

