Graeme McDowell hættir í LIV eftir fjögur ár
Graeme McDowell, sem vann Opna bandaríska meistaramótið árið 2010, verður ekki með í LIV Golf 2.0. Hann hefur leikið í deildinni frá fyrsta tímabili hennar árið 2022.
McDowell greindi frá ákvörðuninni á samfélagsmiðlum í dag. „Ég hef ákveðið að sækjast ekki eftir sæti í LIV 2.0,“ skrifaði hann og þakkaði fyrir árin fjögur í deildinni. McDowell, sem er 47 ára, vann aldrei einstaklingsmót í LIV. Bestum árangri náði hann í Virginíu í júní 2025 þegar hann varð jafn í 2. sæti. Hann sagði sig úr PGA-mótaröðinni skömmu áður en LIV hóf leik og hefur ekki sagt hvort hann snúi aftur á DP World Tour, þar sem hann vann ellefu mót og var fjórum sinnum í liði Evrópu í Ryder-bikarnum.
Síðustu daga hafa Ian Poulter, Tyrrell Hatton og Tom McKibbin einnig sagt skilið við deildina. Frestur kylfinganna til að semja rann út í gær án þess að LIV greindi frá því hve margir hefðu skrifað undir. Bob Harig hjá The Daily Drive hefur eftir blaðamanninum Sujeet Indap að fresturinn renni ekki út fyrr en 30. október, samkvæmt skilmálum lánsins sem sádiarabíski fjárfestingarsjóðurinn PIF veitir deildinni í greiðsluskjólinu.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Austin Smotherman vann Bermuda Championship eftir bráðabana
- Heimsgolfið · PGA Tour ChampionsNýtt
Rory Sabbatini lék á 62 höggum og vann Stifel Charity Classic
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Bráðabani á Bermúda í hádeginu og Íslendingar á úrtökumóti
- Heimsgolfið · VikanNýtt
Golfvikan: Dagbjartur, Ragnar Már og Sigurður Arnar á úrtökumóti á Spáni
- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
LIV Golf 2.0 sagt hafa vilyrði frá um 15 kylfingum
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Séamus Power og Austin Smotherman leika bráðabana um sigurinn á Bermúda
