Golfið í morgunRory Sabbatini lék á 62 höggum og vann Stifel Charity Classic
Rory Sabbatini fagnaði fyrsta sigri sínum á PGA Tour Champions í St. Louis í gær. Hann var fjórum höggum á eftir efsta manni þegar lokahringurinn hófst.

Sabbatini, sem keppir fyrir Slóvakíu og varð fimmtugur í apríl, lék Norwood Hills-völlinn á níu höggum undir pari. Hann vippaði í holu úr karganum fyrir erni á 15. braut, jafnaði við Darren Clarke með fugli á 16. og fékk svo fugl á tveimur síðustu holunum, þann síðari með löngu pútti á 18. flöt. Hann lauk leik á 14 undir pari, höggi á undan Clarke. Henrik Stenson, Steven Alker og Mario Tiziani urðu jafnir í 3. sæti á 12 undir pari.
Mótið var það fyrsta af þremur í úrslitakeppninni um Charles Schwab-bikarinn. Samkvæmt útreikningum mótaraðarinnar fer Sabbatini úr 23. sæti stigalistans í 7. sæti. Af 72 kylfingum halda 54 áfram á Simmons Bank Championship í Little Rock í Arkansas í vikunni.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Bráðabani á Bermúda í hádeginu og Íslendingar á úrtökumóti
- Heimsgolfið · VikanNýtt
Golfvikan: Dagbjartur, Ragnar Már og Sigurður Arnar á úrtökumóti á Spáni
- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
LIV Golf 2.0 sagt hafa vilyrði frá um 15 kylfingum
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Séamus Power og Austin Smotherman leika bráðabana um sigurinn á Bermúda
- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
Dustin Johnson og LIV-kylfingar krefja PIF um yfir 100 milljónir dala
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Lokahringur Bermuda Championship ekki leikinn í dag vegna roks
