Þriðjudagur 24. nóvemberSíðast uppfært 24. nóvember · kl. 06:00
Golf á Íslandi · Klúbbarnir

Jaðarsvöllur kominn í vetrarfrí eftir 37.214 hringi

Golfklúbbur Akureyrar hefur lokað Jaðarsvelli fyrir veturinn enda er spáð frosti og úrkomu. Völlurinn var opinn í 170 daga og síðast var leikið á honum á sunnudag.

Pétur Örn Johnson10. nóvember 2026 kl. 22:211 mín. lestur
Jaðarsvöllur á Akureyri. Ljósmynd: Golfklúbbur Akureyrar
Jaðarsvöllur á Akureyri. Ljósmynd: Golfklúbbur Akureyrar

Golfklúbbur Akureyrar lokaði Jaðarsvelli í dag, 10. nóvember. Völlurinn var ekki opnaður fyrr en seint í maí, nokkru síðar en undanfarin ár, en var samt opinn í 170 daga. Síðast var leikið á honum sunnudaginn 8. nóvember og í nóvember einum voru leiknir tæplega 450 hringir.

Alls voru leiknir 37.214 hringir á Jaðarsvelli í ár. Félagsmenn GA léku 28.417 þeirra, mótshringir ekki meðtaldir.

Golfklúbburinn Keilir lokaði Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í morgun eftir 177 golfdaga.

Inniaðstaðan á Jaðri verður opin í vetur og golfhermana má bóka á golfhermar.gagolf.is.

Golfklúbbur AkureyrarJaðarsvöllurVetrarlokun

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt