Fimmtudagur 8. októberSíðast uppfært 8. október · kl. 19:40
Heimsgolfið · LIV Golf

David Puig hættir í LIV og leikur á DP World Tour á næsta ári

Spánverjinn David Puig verður ekki með þegar LIV-deildin fer af stað í breyttri mynd árið 2027. Hann greindi frá þessu í Madríd á fimmtudag, degi eftir að Jon Rahm sagði skilið við deildina.

Ritstjórn Golfsins8. október 2026 kl. 19:051 mín. lestur
Sergio García, fyrirliði Fireballs-liðsins sem Puig lék með, á Ryder-bikarmótinu í París árið 2018. Ljósmynd: EEJB / Wikimedia Commons, CC BY-SA 4.0
Sergio García, fyrirliði Fireballs-liðsins sem Puig lék með, á Ryder-bikarmótinu í París árið 2018. Ljósmynd: EEJB / Wikimedia Commons, CC BY-SA 4.0

David Puig, 24 ára Spánverji, lék fyrsta hring Opna spænska meistaramótsins á pari og sagði síðan við fréttamenn að hann yrði ekki með í LIV 2.0. „Ég sé ekki fyrir mér að leika í LIV 2.0 á næsta ári,“ sagði hann samkvæmt frétt EFE (í lauslegri þýðingu).

Puig gekk til liðs við LIV þegar hann gerðist atvinnumaður árið 2022 og hefur síðustu tvö tímabil leikið með Fireballs, liði Sergios García. Hann hefur samið við DP World Tour um sektir vegna LIV-aðildarinnar og á öruggan keppnisrétt á mótaröðinni á næsta ári.

García, sem er höggi á eftir efstu mönnum í Madríd, kveðst styðja ákvarðanir Puigs og Jons Rahm. Sjálfur ætlar hann að gera upp hug sinn innan tveggja vikna, en frestur leikmanna LIV rennur út 25. október.

LIV GolfDavid PuigSergio GarcíaDP World Tour
Fréttabréf Golfsins

Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.

Aðeins fréttabréfið, ekkert annað. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt
  1. Fréttaskot · Mótaraðirnar

    Andrea á pari eftir fyrsta hring á Terre Blanche