LIV Golf fær 300 milljónir dala og leikmenn eiga að eignast meirihlutann
Samkomulag LIV Golf og fjárfestingarfélagsins BC Partners um endurskipulagningu deildarinnar hefur verið lagt fyrir gjaldþrotadómstól í New Jersey. Leikmenn eiga að eignast 52,5 prósent í nýju deildinni og fá frest til 25. október til að ákveða sig.

Næsta skref í endurreisn LIV Golf var stigið seint á mánudag að bandarískum tíma. Þá var samkomulag deildarinnar og fjárfestingarfélagsins BC Partners um endurskipulagningu (e. restructuring support agreement) lagt fyrir gjaldþrotadómstólinn í New Jersey, þar sem mál LIV er rekið eftir að deildin fór í greiðslustöðvun samkvæmt 11. kafla bandarískra gjaldþrotalaga í september.
Samkvæmt Golf Channel leggur BC Partners 300 milljónir dala í nýja útgáfu deildarinnar, sem gengur undir vinnuheitinu LIV Golf 2.0.
Leikmenn í meirihluta
Í samningsdrögunum, sem fylgdu umsókninni, kemur fram að leikmenn eigi saman að eignast 52,5 prósent í endurskipulagðri deild. BC Partners og aðrir minni fjárfestar fá 45 prósent og stjórnendur 2,5 prósent. Leikmenn eiga auk þess að fá greiðslu við undirritun og tiltekin réttindi til að nýta nafn sitt og ímynd í markaðsskyni.
Samkomulagið framlengir jafnframt frest núverandi leikmanna til að skuldbinda sig nýju deildinni til 25. október. Áður hafði verið greint frá því að fresturinn rynni út 13. október, eins og Golfið fjallaði um í gær.
„Við höfum bjargfasta trú á framtíð deildarinnar,“ sagði Scott O’Neil, framkvæmdastjóri LIV, í yfirlýsingu, í lauslegri þýðingu.
Hvað gerist næst?
Dómstóllinn tekur samkomulagið fyrir 14. október. Verði það samþykkt getur LIV hafið formlegar viðræður við leikmenn, styrktaraðila og sjónvarpsstöðvar og hafið undirbúning næsta árs. O’Neil hefur boðað tíu mót árið 2027, fimm í Bandaríkjunum og fimm alþjóðleg liðamót. Önnur fyrirtaka er á miðvikudag, en samkvæmt Golf Channel verður hún að mestu formsatriði.
Enn er óljóst hverjir verða með. Samkvæmt samningsdrögunum þarf að gera nýja samninga við leikmenn, þar á meðal þá sem BC Partners setur sem skilyrði. Þá þarf tilskilinn meirihluti kröfuhafa að samþykkja endurskipulagninguna og dómstóllinn að telja rekstraráætlunina raunhæfa.
Ekki ætla allir að fylgja með. Sergio García hefur þegar beðið dómstólinn um að fá að losna undan samningi sínum við deildina.
Golffréttir dagsins í pósthólfið alla virka morgna.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · GolfheimurinnNýtt
Ár í Ryder-bikarinn: Furyk boðar breytingar og segir Bandaríkin lítilmagnann
- Fréttaskot · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur jafn í 5. sæti eftir fyrsta hring á Gotlandi
- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Jon Rahm dregur sig úr Opna spænska – á von á fjórða barninu
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Schauffele ver titilinn í Japan þar sem baráttan um keppnisréttinn harðnar
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Scott vann annað mótið í röð, Alker í liði heimsins og golfið snýr aftur til Djúpavogs
- Heimsgolfið · GolfheimurinnNýtt
Alker vann í fjórða sinn á árinu og verður í liði heimsins í Clearwater