Golfið í morgunPauline Roussin-Bouchard efst eftir fyrsta hring í Malasíu
Pauline Roussin-Bouchard lék fyrsta hringinn á Maybank Championship í Kuala Lumpur á 64 höggum og er höggi á undan næstu kylfingum. Ryu Hae-ran hætti við áður en hún hóf leik.

Roussin-Bouchard, sem er átta undir pari, fékk fugla á þremur síðustu holunum á velli Kuala Lumpur Golf and Country Club. Hún fékk keppnisrétt á LPGA-mótaröðinni á úrtökumóti árið 2022 og hefur ekki enn unnið mót þar, en hefur tvisvar unnið á Evrópumótaröð kvenna. Sophia Schubert og Miyu Yamashita léku á 65 höggum. Yamashita vann mótið í fyrra eftir bráðabana þriggja kylfinga. Charley Hull og Perrine Delacour léku á 66 höggum. Yuri Yoshida, sem vann mót í Suður-Kóreu um helgina, lék á 69 höggum.
Ekki var greint frá því hvers vegna Ryu Hae-ran dró sig úr keppni. Hún vann Women’s PGA Championship og Evian Championship í sumar og var hæst á heimslistanum þeirra sem skráðar voru til leiks, þar sem Nelly Korda og Jeeno Thitikul eru ekki með.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Dagbjartur, Ragnar Már og Sigurður Arnar hefja leik á Spáni í dag
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Nesklúbburinn undirbýr viðræður við bæjarstjórn Seltjarnarness
- Heimsgolfið · PGA Tour ChampionsNýtt
Sony-mótið á Havaí færist yfir á PGA Tour Champions
- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
Adelaide gæti hætt við LIV-mótið ef stjörnurnar fara
- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Fitzpatrick, Lowry og Fox ekki með í Abu Dhabi
- Lífið í golfinu · SvipmyndNýtt
Wesley Bryan er í banni á PGA-mótaröðinni og stýrir eigin mótaröð