Julien Sale efstur á lokamóti HotelPlanner-mótaraðarinnar
Julien Sale frá Frakklandi lék annan hringinn á Alcanada-vellinum á Mallorca á 65 höggum og er á 13 undir pari, höggi á undan Lars van der Vight.

Sale lék fyrsta hringinn á 66 höggum og er samtals á 131 höggi. Lars van der Vight, sem vann Hainan Open í október tveimur höggum á undan Joseba Torres, lék einnig á 65 höggum á öðrum hring.
Torres, sem var efstur eftir fyrsta hring, lék á 68 höggum og er þriðji á 11 undir pari. Á hringnum var hann nærri því að fara holu í höggi, fékk fugl á holunni og var um tíma aftur einn efstur. Torres er í 10. sæti stigalistans eins og staðan er nú og fimmtán efstu fá keppnisrétt á DP World Tour árið 2027.
John Catlin er á 10 undir pari og Matthew Southgate og MJ Daffue á 9 undir pari. Pablo Ereño er jafn í 14. sæti á 6 undir pari en sjötti á stigalistanum og nánast öruggur um keppnisrétt.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- 19. holan · GolflífiðNýtt
Smáauglýsingar golfhaustsins: logn óskast, sveiflan týnd
- Afrekskylfingar · ÁhugamennNýtt
Róbert Leó jafn í 9. sæti á síðasta móti Manhattan í haust
- Heimsgolfið · LETNýtt
Cheng-Hsuan Shih tekur forystuna á Wistron Ladies Open
- Umfjöllun · GolfferðirNýtt
Maíferð á Costa Ballena aftur í sölu á 339.900 krónur
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Miyu Yamashita með tveggja högga forystu á Maybank Championship
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Framtíð LIV ræðst í dag og Íslendingarnir leika annan hring á Spáni
