GolflífiðSmáauglýsingar golfhaustsins: logn óskast, sveiflan týnd
Í smáauglýsingum golfhaustsins selst dræver vegna ósættis, pútter fæst gegn því að hann flytji í annað sveitarfélag og logn óskast í tvær klukkustundir í júlí.

Þegar völlunum er lokað fer golfdótið í sölu. Pútterinn sem brást í ágúst er kominn á netið fyrir mánaðamót og seljandinn farinn að sjá eftir honum áður en fyrsta tilboðið berst. Svona gæti smáauglýsingadálkur kylfinga litið út síðasta föstudaginn í október.
Til sölu
Dræver, 460 cc, lítið notaður. Hefur ekki séð braut síðan í júní. Selst vegna ósættis. Verð samkomulag.
Pútter. Hefur fengið að heyra það oftar en nokkur annar hlutur á heimilinu. Fæst gegn því að hann flytji í annað sveitarfélag.
Rafknúin golfkerra. Fer beint. Eigandinn gerði það ekki.
Golfskór, vatnsheldir samkvæmt kassanum. Seljandi getur vitnað um annað.
Óskast
Logn. Í tvær klukkustundir, helst á laugardagsmorgni í júlí. Staðsetning skiptir ekki máli, en Suðurnes kæmu skemmtilega á óvart.
Rástími kl. 8.30 á laugardegi. Í skiptum býðst rástími kl. 14.20 á þriðjudegi og rafknúin golfkerra (sjá ofar).
Fjórði maður í holl á miðvikudögum. Má ekki vera betri en við hinir, en heldur ekki svo slakur að við þurfum að bíða eftir honum.
Meðspilari sem hrósar teighögginu án þess að bæta við „en“.
Tapað
Sveiflan. Sást síðast á æfingasvæðinu 14. júlí, þegar hún gekk eins og í sögu í hálftíma. Finnandi er vinsamlegast beðinn að skila henni fyrir vorið. Fundarlaun í boði.
Gefins
Golfráð í ótakmörkuðu magni. Afhent óumbeðin á hvaða teig sem er, helst í miðri aftursveiflu.
Atvinna
Kylfusveinn óskast í golfferð til Spánar í apríl. Starfið felst í því að bera pokann, finna boltann og segja „þetta var óheppni“ að minnsta kosti þrisvar á hverri holu. Laun: sólarvörn og ævarandi þakklæti.
Þjónusta
Tek að mér að útskýra fyrir maka hvers vegna níu holur tóku fimm klukkustundir. Fullum trúnaði heitið.
Til sölu
Fullt golfsett með poka og kerru. Selst vegna þess að eigandinn er hættur í golfi, í fjórða sinn á jafnmörgum árum. Auglýsingin verður tekin niður í apríl.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Afrekskylfingar · ÁhugamennNýtt
Róbert Leó jafn í 9. sæti á síðasta móti Manhattan í haust
- Heimsgolfið · LETNýtt
Cheng-Hsuan Shih tekur forystuna á Wistron Ladies Open
- Umfjöllun · GolfferðirNýtt
Maíferð á Costa Ballena aftur í sölu á 339.900 krónur
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Miyu Yamashita með tveggja högga forystu á Maybank Championship
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Framtíð LIV ræðst í dag og Íslendingarnir leika annan hring á Spáni
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur og Ragnar Már jafnir í 12. sæti á úrtökumótinu