ÁhugamennDagbjartur og Ragnar Már jafnir í 12. sæti á úrtökumótinu
Dagbjartur Sigurbrandsson og Ragnar Már Garðarsson léku báðir á 67 höggum, fjórum undir pari, á fyrsta hring 2. stigs úrtökumótsins fyrir DP World Tour á Isla Canela Links.

Dagbjartur fékk fjóra fugla og fjórtán pör. Ragnar Már fékk fjóra fugla, örn og skramb. Tólf kylfingar eru jafnir í 12.–23. sæti.
Sigurður Arnar Garðarsson, bróðir Ragnars Más, er jafn í 61. sæti eftir hring á 72 höggum, tveimur yfir pari, á Fontanals-vellinum. Hann fékk skramb á 2. holu en þrjá fugla á næstu sjö holum. Á seinni níu holunum fékk hann tvo skolla, skramb og einn fugl.
Tuttugu efstu kylfingarnir á hvorum velli komast á lokastigið, sem hefst í Tarragona 6. nóvember. Annar hringur er leikinn í dag og mótunum lýkur á sunnudag.
Kylfingar sem þú fylgir birtast efst á forsíðunni með nýjustu stöðu.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Framtíð LIV ræðst í dag og Íslendingarnir leika annan hring á Spáni
- Heimsgolfið · MótaraðirnarNýtt
Joseba Torres efstur á lokamóti HotelPlanner-mótaraðarinnar
- Heimsgolfið · GolfheimurinnNýtt
Fifa Laopakdee með þriggja högga forystu á Asia-Pacific Amateur
- Heimsgolfið · LETNýtt
Casandra Alexander efst á Wistron Ladies Open í Taívan
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Pauline Roussin-Bouchard efst eftir fyrsta hring í Malasíu
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Dagbjartur, Ragnar Már og Sigurður Arnar hefja leik á Spáni í dag



