Casandra Alexander efst á Wistron Ladies Open í Taívan
Casandra Alexander, efst á stigalista LET, lék fyrsta hringinn á Wistron Ladies Open á 64 höggum án skolla og hefur tveggja högga forystu.

Alexander, sem er frá Suður-Afríku, fékk sex fugla á Sunrise-vellinum við Taoyuan og setti niður arnarpútt á lokaholu sinni. Hún sagði vindinn hafa verið tvöfalt hvassari á efri hluta vallarins en neðar. Heimakonan Cheng-Hsuan Shih, sem vann mótið árið 2020, er önnur á sex undir pari. Sex kylfingar eru jafnir í þriðja sæti á fimm undir, þeirra á meðal Helen Briem frá Þýskalandi og Englendingarnir Alice Hewson og Hannah Screen. Yani Tseng, sem vann í fyrra, er ein tíu kylfinga sem eru jafnir í 10. sæti.
Annar hringur hefst klukkan 22.20 í kvöld að íslenskum tíma. Að honum loknum komast 60 efstu atvinnukylfingarnir og þeir sem eru jafnir þeim gegnum niðurskurðinn.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · MótaraðirnarNýtt
Joseba Torres efstur á lokamóti HotelPlanner-mótaraðarinnar
- Heimsgolfið · GolfheimurinnNýtt
Fifa Laopakdee með þriggja högga forystu á Asia-Pacific Amateur
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Pauline Roussin-Bouchard efst eftir fyrsta hring í Malasíu
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Dagbjartur, Ragnar Már og Sigurður Arnar hefja leik á Spáni í dag
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Nesklúbburinn undirbýr viðræður við bæjarstjórn Seltjarnarness
- Heimsgolfið · PGA Tour ChampionsNýtt
Sony-mótið á Havaí færist yfir á PGA Tour Champions