Miðvikudagur 25. nóvemberSíðast uppfært 25. nóvember · kl. 10:53
Golftól · Vallarval

Hvert á að fara í golf í dag?

Reikna…

Gott golfveðurSpilanlegtErfittUtan aksturs eða lokaðUpphafsstaður
Hvernig er raðað?

Veðureinkunnin (0–10) er sú sama og á Golfveðrinu: vindur, hviður, úrkoma og hiti á bestu þremur klukkustundunum í dagsbirtu. Akstur dregur frá: hver klukkustund á leiðinni kostar um hálft stig. Vellir sem klúbburinn hefur sagt lokaða koma ekki til greina. Frá miðjum október til vors eru aðeins sýndir vellir sem klúbburinn hefur sagt opna, því flestir klúbbar tilkynna ekki þegar þeir loka.

Akstur er áætlaður út frá fjarlægð í beinni línu og meðalhraða, svo hann getur verið lengri í raun, til dæmis á Vestfjörðum eða ef fara þarf í Herjólf.

Gott að vita

Staða vallanna kemur frá klúbbunum sjálfum, með dagsetningu og heimild. Hringdu eða kíktu á vef klúbbsins ef þú ert í vafa, sérstaklega á haustin og vorin.

Vallargjöldin eru fyrir kylfinga innan GSÍ, eins og klúbbarnir birta þau. Sjá líka árgjöldin og Kaddýinn fyrir leikáætlun á vellinum.

Fleiri golftól · öll tólin