Golftól · Höggatap
Hvar tapa ég höggum?
Sex tölur af skorkortinu segja meira en skorið eitt. Berðu þig saman við kylfinga með sömu forgjöf og sjáðu hvar mest er að sækja.
Svona reiknum við
- Viðmiðin eru meðaltöl áhugakylfinga eftir forgjöf, úr gögnum Shot Scope sem birst hafa í Golf Monthly. Á milli forgjafarþrepa er brúað; yfir 25 í forgjöf eru viðmiðin framreiknuð.
- Hver tala er síðan umreiknuð í högg með þumalputtareglum úr tölfræðinni sem kennarar og atvinnumenn nota (e. strokes gained): misst braut kostar um fjórðung úr höggi, misst flöt um 0,6 högg, misheppnuð björgun um 0,8 högg og hvert þrípútt heilt högg.
- Björgunin er borin saman við flatirnar sem þú misstir, svo kylfingur sem missir margar flatir fái ekki forskot fyrir það eitt að fá fleiri tækifæri.
Af hverju ekki heildarfjöldi pútta?
Vegna þess að hann refsar þeim sem hitta flatir. Sá sem missir flöt og vippar nálægt holu þarf oft aðeins eitt pútt, en sá sem hittir flötina á oft langt pútt eftir. Í gögnum Shot Scope fjölgar púttum á hring eftir því sem flatirnar verða fleiri. Þrípúttin segja meira um púttin sjálf.
Útkoman er grófur vegvísir, ekki dómur. Nokkrir hringir gefa betri mynd en einn. Meira um skynsamlegt leikskipulag í greinaflokki Golfsins, og golfkennarar um allt land hjálpa þér með rest.
Fleiri golftól
VerðmatHvað eru kylfurnar þínar virði notaðar – og hvað býður búðin í uppítöku?SkaftavalHvaða stífleiki, þyngd og beygjupunktur henta sveiflunni þinni?BoltavalGolfboltinn sem hentar þér – með verði í íslenskum verslunum.Vegalengdir í dagHve langt fer hver kylfa í hita og vindi dagsins á vellinum þínum?VallarforgjöfVallar- og leikforgjöf fyrir hvaða teig sem er – og skormismunur hringsins.KylfulengdEru kylfurnar af réttri lengd miðað við hæð þína og handleggi?GripstærðHvaða stærð af gripi passar hendinni – og hvenær er kominn tími á ný grip?