Búnaðurinn
Fimm stutt skref: lengd, grip, skaft, bolti og verðmat á gamla settinu. Niðurstaðan úr hverju skrefi safnast hér saman.
- 1Hæð og handleggirKylfulengdEru kylfurnar af réttri lengd miðað við hæð þína og handleggi?Byrja
- 2HöndinGripstærðHvaða stærð af gripi passar hendinni – og hvenær er kominn tími á ný grip?Byrja
- 3SveiflanSkaftavalHvaða stífleiki, þyngd og beygjupunktur henta sveiflunni þinni?Byrja
- 4BoltinnBoltavalGolfboltinn sem hentar þér – með verði í íslenskum verslunum.Byrja
- 5Hvað fæst fyrir gamla settið?VerðmatHvað eru kylfurnar þínar virði notaðar – og hvað býður búðin í uppítöku?Byrja
Niðurstöðurnar þínar vistast aðeins í þessum vafra – ekkert er sent til okkar.
- Kylfulengd – hæð og fjarlægð úlnliðs frá gólfi segja hvort járnin eigi að vera lengri eða styttri en staðallengd.
- Gripstærð – lengd handar eða hanskastærð gefur stærð gripsins og hvenær kominn er tími á ný grip.
- Skaftaval – högglengd, taktur og boltaflug gefa stífleika, þyngd og beygjupunkt sem viðmið í mátun.
- Boltaval – þrír boltar sem henta þér, með lægsta verði í íslenskum verslunum.
- Verðmat – hvers virði gömlu kylfurnar eru notaðar.
Tólin byggjast á mátunartöflum framleiðenda og viðurkenndum þumalputtareglum. Þau gefa gott viðmið en mátun staðfestir útkomuna.
Næsta skref: Golfbúnaður – verð borin saman · Markaðurinn · Golfkennsla
Búnaðurinn: spurningar og svör
Get ég fundið réttan golfbúnað án mátunar?
Að miklu leyti. Hæð, fjarlægð úlnliðs frá gólfi, stærð handar og nokkrar spurningar um sveifluna duga til að finna gott viðmið fyrir kylfulengd, gripstærð, skaft og bolta. Mátun hjá golfkennara eða í golfverslun staðfestir svo útkomuna, sérstaklega leguna (lie) og skaftið.
Í hvaða röð er best að fara?
Byrjaðu á kylfulengdinni og gripinu, sem ráðast af líkamanum. Svo kemur skaftið, sem ræðst af sveiflunni, og síðast boltinn. Verðmatið segir þér hvað fæst fyrir gamla settið ef þú ætlar að skipta.
Hvað þarf ég að mæla?
Hæðina, fjarlægðina frá úlnlið að gólfi þegar þú stendur bein(n) í golfskóm með handleggina niður með síðum, og lengd handarinnar frá neðstu fellingunni á úlnliðnum að fremsta hluta löngutangar (eða hanskastærðina). Fyrir skaft og bolta þarftu að vita hve langt dræverinn fer.
Hvar fæ ég búnaðinn á besta verðinu?
Golfbúnaðarsíðan ber saman verð á sömu vörunni í íslenskum golfverslunum, og á Markaðnum eru notaðar kylfur til sölu.
Er þetta ókeypis?
Já. Tólin eru ókeypis og án innskráningar, og það sem þú slærð inn vistast aðeins í vafranum þínum.