Golftól · Skaftaval
Hvaða golfskaft hentar þér?
Fimm spurningar um sveifluna þína – og þú færð stífleika, þyngd, beygjupunkt og snúning sem gott er að byrja með í mátun.
Svona virkar skaftavalið
- Stífleikinn ræðst fyrst og fremst af sveifluhraðanum. Ef þú gefur upp lengd í lofti er hún umreiknuð í áætlaðan sveifluhraða.
- Hraður taktur hleður skaftið meira og kallar á stífara og þyngra skaft en hraðinn einn segir til um.
- Beygjupunkturinn hefur áhrif á flugið: lágur beygjupunktur lyftir boltanum, hár heldur honum niðri.
- Snúningur (e. torque) segir til um hve mikið skaftið snýst í högginu. Minni snúningur heldur kylfuhausnum stöðugri.
Áður en þú kaupir
Skaft lagar ekki sveiflu. Ef boltinn sveigir mikið er líklegra að sveiflan eða staða höggflatarins valdi því en skaftið – þar hjálpar golfkennari meira en nýtt skaft.
Prófaðu alltaf áður en þú kaupir. Margar golfverslanir bjóða mátun með mæli og golfkennarar líka. Verð á kylfum: dræverar í íslenskum verslunum.
Fleiri golftól · öll tólin
KaddýinnLeikáætlun fyrir hverja holu á 14 íslenskum völlum og á Spáni, skorkort, punktar og hollið saman.ÞjálfarinnHvar tapar þú höggum? Tölur hringsins og sex stöðvar á æfingasvæðinu, bornar saman við kylfinga með sömu forgjöf – og æfingaplan í fjórar vikur.VallarvalBesti golfvöllurinn eftir veðri, akstri, stöðu vallarins og vallargjaldi.Golfmátun heimaKylfulengd, gripstærð, skaft og bolti sem henta þér – fimm stutt skref.VerðmatHvað eru kylfurnar þínar virði notaðar – og hvað býður búðin í uppítöku?DómarinnGolfreglurnar á mannamáli úti á velli. Pikkaðu á staðinn á holunni, svaraðu einni til þremur spurningum og sjáðu á mynd hvar þú mátt láta falla – með staðarreglum vallarins.