Golf Channel Games: lið McIlroys og Schefflers mætast 16. desember
Golf Channel Games fara fram í annað sinn 16. desember á Trump National Golf Club Jupiter í Flórída. Rory McIlroy og Scottie Scheffler stýra fjögurra manna liðum.

Með Rory McIlroy leika Matt Fitzpatrick, Si Woo Kim og Haotong Li, en í liði Scotties Schefflers eru Chris Gotterup, Michael Brennan og Jackson Koivun. McIlroy, Scheffler og Li voru allir með þegar keppnin var haldin í fyrsta sinn í fyrra.
Leikið verður við flóðljós og hefst keppnin á miðnætti að íslenskum tíma, aðfaranótt 17. desember. Fjórtán kylfna þrautin og boðhlaup liðanna frá því í fyrra verða aftur á dagskrá, auk nýrra greina sem hafa ekki enn verið kynntar. Sýnt verður frá keppninni á Golf Channel og USA Network.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Jon Rahm myndi líklega þiggja sama samning og Koepka
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Rýmingaráætlun í Abu Dhabi og Herbert skýrir brotthvarfið úr LIV
- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Abu Dhabi Championship: leik hætt ef neyðarviðvörun berst í síma
- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Pieters og An á lokastig úrtökumótsins en Horsfield úr leik
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Andrew Novak vann Mexico Open með fimm högga mun
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Andrew Novak vann í Mexíkó og Darren Fichardt í Little Rock