Miðvikudagur 14. októberSíðast uppfært 14. október · kl. 21:14
Afrekskylfingar · Mótaraðirnar

Andrea á þremur undir pari á fyrsta degi í Calatayud

Hulda Clara Gestsdóttir lék á tveimur undir pari, þremur höggum verr en Theresa De Bochdanovits, sem er sæti ofar en hún á stigalista LET Access.

Ritstjórn Golfsins14. október 2026 kl. 16:581 mín. lestur
Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir á Íslandsmótinu á Urriðavelli 2023. Ljósmynd: Golfsamband Íslands (golf.is)
Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir á Íslandsmótinu á Urriðavelli 2023. Ljósmynd: Golfsamband Íslands (golf.is)

Andrea Bergsdóttir var á pari eftir fjórtán holur en lék síðustu fjórar á þremur höggum undir pari. Hún var jöfn í 9. sæti þegar fimmtán kylfingar áttu eftir að ljúka leik. Ragnhildur Kristinsdóttir lék á pari. Johanna Sjursen frá Svíþjóð er efst á átta undir pari.

Í holli Huldu Clöru voru Lauren Holmey, sem er efst á stigalistanum, og Elsa Svensson, sem er í sjötta sæti. Holmey lék á pari og Svensson á fjórum höggum undir pari. Annar hringur hefst á fimmtudagsmorgun og þá verður Hulda Clara aftur í holli með Holmey og Svensson.

LET AccessAndrea BergsdóttirHulda Clara GestsdóttirRagnhildur Kristinsdóttir
Fylgstu með

Kylfingar sem þú fylgir birtast efst á forsíðunni með nýjustu stöðu.

Fréttabréf Golfsins

Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.

Aðeins fréttabréfið, ekkert annað. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt