Miðvikudagur 4. nóvemberSíðast uppfært 4. nóvember · kl. 19:30
Kennsla · Leikskipulag

Kaddýinn: leikáætlun fyrir hverja holu, reiknuð út frá þínum höggum

Kaddýinn er stærsta verkefni Golfsins til þessa: ókeypis tól sem segir þér hvaða kylfu á að taka, hvert á að miða og hvar á að leggja upp á hverri holu átta íslenskra valla, út frá því hvernig þú slærð í raun.

Ritstjórn Golfsins4. nóvember 2026 kl. 19:308 mín. lestur
Leikáætlun Kaddýsins fyrir 16. holu Grafarholtsvallar fyrir kylfing með 18 í forgjöf: tvö högg, kylfa og lengd á hvoru, og sporöskjulaga svæðið þar sem flest höggin enda.
Leikáætlun Kaddýsins fyrir 16. holu Grafarholtsvallar fyrir kylfing með 18 í forgjöf: tvö högg, kylfa og lengd á hvoru, og sporöskjulaga svæðið þar sem flest höggin enda.

Kylfingur með 8 í forgjöf sem slær dræverinn 220 metra í loftinu stendur á 16. teig í Grafarholti. Holan er 333 metra par 4 af teigum 57, og vatn liggur þvert yfir hana rétt framan við teiginn. Hann getur tekið dræverinn og átt eftir um 85 metra með sandjárninu, eða 5-tréð og 9-járn inn á flöt af 130 metrum. Kaddýinn reiknar báðar leiðir fyrir hans högg. Með drævernum er meðalskorið á holunni um 4,5 högg og 5-tréð kostar um tíunda úr höggi til viðbótar, hvort sem hann missir boltann til hægri, vinstri eða í báðar áttir.

Svona spurningum svarar Kaddýinn á hverri holu átta íslenskra valla, fyrir þig og þínar kylfur. Hann opnar í dag á slóðinni golfid.is/tol/kaddyinn. Notkun er ókeypis og ekki þarf að skrá sig inn.

Hugsunin á bak við Kaddýinn

Góður kylfusveinn spyr ekki hversu langt þú slærð þegar allt gengur upp. Hann veit hvernig höggin þín dreifast: hversu oft þau fara til hægri, hversu oft þau verða stutt, og hvað bíður þar sem þau lenda. Leikáætlunin hans miðast við öll höggin þín, ekki það besta.

Kaddýinn er byggður á sömu hugsun. Fyrir hvert högg á holunni ber hann saman kylfur og mið, og fyrir hvern kost hermir hann nokkur hundruð högg með þinni dreifingu. Hvert högg endar einhvers staðar á kortinu: á braut, í karga, glompu, vatni eða utan vallar. Fyrir hvern lendingarstað er reiknað hversu mörg högg eru eftir að meðaltali. Sá kostur sem gefur lægst meðalskor á holunni allri verður að tillögu.

Útkoman er svar við þremur spurningum sem kylfingur spyr sig á hverjum teig: hvaða kylfu á að taka, hvert á að miða og hvar á að leggja upp. Á skjánum sést áætlunin á korti af holunni, með lengd hvers höggs og sporöskju utan um svæðið þar sem flest höggin enda. Við hvert högg stendur hversu stór hluti boltanna endar á braut og hversu margir af hverjum hundrað lenda í vandræðum.

Dræverinn á 95 af 106 holum

Fyrir opnunina létum við Kaddýinn reikna allar 106 par 4 og par 5 holurnar á vellunum átta fyrir þrjá kylfinga: með 5, 15 og 25 í forgjöf, af næstlengstu teigum hvers vallar og með dæmigerðar lengdir í pokanum. Kylfingurinn með 15 í forgjöf á að taka dræverinn á 95 holum af 106. Hjá kylfingi með 25 í forgjöf er dræverinn besti kosturinn á 102 holum og hjá kylfingi með 5 í forgjöf á 91.

Fimm af þeim fimmtán holum þar sem kylfingurinn með 5 í forgjöf á að geyma dræverinn eru á Hvaleyrarvelli: 2., 3., 8., 10. og 14. hola. Þar tekur 3-tré eða 5-tré við af teig.

Á 15. holu Brautarholts, 290 metra par 4 með klettóttri strönd vinstra megin, kostar dræverinn kylfing með 15 í forgjöf 0,4 högg að meðaltali miðað við 3-tréð.

Forgjöfin breytir leikáætluninni

Kaddýinn spyr um forgjöf því hún segir til um dreifinguna. Kylfingur með 0 í forgjöf og kylfingur með 15 geta slegið dræverinn jafnlangt, en högg þess síðarnefnda dreifast á breiðara svæði og fleiri þeirra misheppnast alveg. Áætlunin sem hentar öðrum þeirra þarf því ekki að henta hinum.

Ofan á forgjöfina velur þú leikstíl: öruggan leik, hlutlausan eða sóknarleik. Stíllinn hreyfir ekki við reikningnum sjálfum. Hlutlausa áætlunin er alltaf sú sem gefur lægst meðalskor. Öruggi leikurinn velur, meðal kosta sem eru nánast jafngóðir, þann sem setur fæsta bolta í vatn, hraun, mosa, kjarr eða út fyrir vallarmörk. Sóknarleikurinn velur, meðal sömu kosta, þann sem skilur eftir stysta innáhöggið. Reglan er sú sama fyrir alla kylfinga. Það sem breytist með forgjöfinni er hvaða kostir eru nánast jafngóðir.

Til að sjá hvað það þýðir í raun reiknuðum við allar 108 holurnar á sex völlum, Grafarholti, Korpu, Hvaleyri, Urriðavelli, Hlíðavelli og Brautarholti, fyrir kylfinga með 0, 15 og 25 í forgjöf, í öllum þremur stílunum.

Kylfingur með 0 í forgjöf tekur dræverinn á 51 af 80 par 4 og 5 holum í öruggum leik en 72 í sóknarleik. Með 15 í forgjöf eru tölurnar 66 og 75 og með 25 í forgjöf 72 og 78.
Á hve mörgum af 80 par 4 og 5 holum dræverinn er tekinn af teig, eftir forgjöf og leikstíl. Útreikningar Kaddýsins á sex völlum.

Hjá kylfingnum með 0 í forgjöf ræður stíllinn miklu um teighöggið. Í öruggum leik tekur hann dræverinn á 51 af 80 par 4 og 5 holum en á 72 í sóknarleik, og stíllinn breytir teigkylfunni á 27 holum af 108. Ástæðan er sú að 5-tré eða blendingur fer hjá honum nógu beint til að forðast hættu sem dræverinn kemur með, og lengdin sem hann fórnar kostar lítið. Á 6. holu Brautarholts, 322 metra par 4 með vatn beggja vegna, setur öruggi leikurinn upp 5-tré og 50° fleygjárn af 114 metrum. Hlutlausi leikurinn og sóknarleikurinn taka dræverinn og eiga eftir tæpa 70 metra.

Hjá kylfingi með 15 í forgjöf er bilið mun minna: dræverinn á 66 holum í öruggum leik og 75 í sóknarleik, og teigkylfan breytist á 16 holum. Á sömu 6. holu Brautarholts setja allir þrír stílarnir upp dræverinn. Hjá honum dreifast bæði dræverinn og 5-tréð breiðar en brautin, svo að leggja upp af teig fækkar vandræðunum minna. Um leið kostar hver metri sem bætist við innáhöggið hann meira en kylfinginn með 0 í forgjöf. Upplegg af teig fer því oftar út fyrir það sem öruggi leikurinn má kosta, og valið færist yfir á næsta högg. Á 15. holu Grafarholts, par 5, byrja allir þrír stílarnir á drævernum. Öruggi leikurinn leggur svo upp með 5-járni og á eftir um 100 metra, en sóknarleikurinn tekur 3-tréð og á eftir rúma 60. Meðalskorið er það sama.

Hjá kylfingi með 25 í forgjöf breytir stíllinn teigkylfunni aðeins á 11 holum. Hann tekur dræverinn á 72 holum í öruggum leik og 78 í sóknarleik, og munurinn á stílunum liggur nær alltaf í öðru og þriðja högginu.

Hjá öllum þremur er munurinn á meðalskori öruggu áætlunarinnar og sóknaráætlunarinnar innan við fjórðungur úr höggi á 18 holum. Leikstíllinn er því ekki spurning um að tapa eða vinna mörg högg, heldur hvernig þú vilt spila þau. Á mörgum holum skiptir hann engu máli, því ein leið er greinilega best. Þá segir Kaddýinn það.

Þínar kylfur, þín skekkja

Áður en áætlunin er sett upp velur þú kylfurnar í pokanum og hversu langt hver þeirra fer í loftinu. Það má vera 7-tré í stað 5-trés, tveir blendingar eða ekkert 3-tré. Svo gefur þú upp forgjöf, hvort þú ert rétthent(ur) eða örvhent(ur), og hvort þú missir oftar með sneiðingu, krækju eða í báðar áttir. Á skjánum sýna örvar hvernig boltinn sveigir hjá þér, svo ekki þarf að kunna orðin. Sá sem missir til hægri fær mið sem liggur nær vinstri brún brautarinnar, og öfugt.

Ef þú vilt slá annað högg en áætlunin leggur til, til dæmis dræverinn þar sem hún segir 5-tré, pikkar þú á höggið og velur kylfuna, eða dregur númeruðu merkin á kortinu þangað sem þú vilt miða. Áætlunin reiknast þá upp á nýtt út frá því hvar boltinn er líklegur til að lenda, og sýnir hvað valið kostar eða sparar í höggum. Á par 5 holum má líka stilla hversu langt annað höggið á að fara.

Hvernig hann reiknar

Á bak við hverja áætlun eru nokkur þúsund hermd högg. Hvert högg fær dreifingu sem fer eftir kylfunni og forgjöfinni: lengri kylfa og hærri forgjöf gefa breiðara mynstur, og hluti högganna misheppnast alveg. Fjöldi högga sem eru eftir frá hverjum stað byggir á gögnum Marks Broadie, prófessors við Columbia-háskóla, sem bjó til mælikvarðann „strokes gained“ sem PGA-mótaröðin notar. Í Kaddýnum eru þau aðlöguð að forgjöf.

Vindur og hiti eru tekin með. Kaddýinn sækir veðurspá fyrir völlinn og þú velur klukkutímann sem þú átt rástíma. Í mótvindi og kulda verður kylfuvalið lengra, og í hliðarvindi færist miðið. Ef áætlunin er gerð daginn áður má aftengja vindinn eða velja átt og styrk sjálf(ur). Hæðarmunur milli teigs og flatar er reiknaður út frá hæðargögnum, svo upphallandi innáhögg fær lengri kylfu.

Á hverri holu má líka horfa á áætlunina úr lofti. Yfirflugið sýnir holuna í þrívídd, með landslaginu, og fylgir hverju höggi eftir frá teig inn á flöt.

Úti á velli

Kaddýinn er gerður fyrir símann. Með GPS sýnir hann hvar þú stendur á holunni og hversu langt er fremst, á miðja og aftast á flötina. Pikkir þú á flötina stækkar hún á skjánum svo hægt sé að merkja holustað dagsins nákvæmlega, og innáhöggið miðast við hann. Sólarstilling eykur birtuskil í sterku sólskini og skjárinn slokknar ekki á meðan áætlunin er opin.

Ef þú vilt má skrá hvert höggið fór í raun. Þá getur áætlunin uppfærst og lagt til næsta högg út frá þeim stað. Eftir hringinn sérð þú hvar þú vannst og tapaðir höggum: í teighöggum, innáhöggum, stutta spilinu eða púttum. Eftir nokkra hringi á sama velli fer Kaddýinn að nota þína raunverulegu dreifingu í stað þeirrar sem forgjöfin gefur til kynna.

Þegar völlurinn hefur verið opnaður einu sinni virkar tólið án nettengingar, og það má setja á heimaskjáinn eins og app. Hollið getur líka haldið sameiginlega skortöflu á sínum símum með fimm stafa kóða.

Fyrir þá sem vilja hafa blað í vasanum er hægt að prenta áætlunina: sex holur á A4-blaði, þrjú blöð fyrir 18 holur.

Vellirnir

Í dag eru þessir vellir í Kaddýnum: Urriðavöllur (Oddur), Kiðjabergsvöllur, Leirdalsvöllur (GKG), Korpúlfsstaðavöllur (Sjórinn og Landið), Grafarholtsvöllur, Hvaleyrarvöllur, Brautarholtsvöllur og Hlíðavöllur (GM). Hver völlur hefur líka sína síðu með lengdum allra holna af öllum teigum. Fleiri vellir bætast við á næstunni.

Brautir, flatir, glompur, vatn og vallarmörk eru teiknuð eftir loftmyndum og opnum kortagögnum, og lengdir og forgjöf holna eru af skorkortum klúbbanna. Á Urriðavelli, Leirdalsvelli, Hvaleyrarvelli og Brautarholti fylgja áætluninni ráð um hverja holu, endursögð úr vallarvísum klúbbanna. Kaddýinn fylgir ekki staðarreglum hvers vallar út í æsar. Hraun og mosi eru til dæmis reiknuð sem vítasvæði með einu vítishöggi.

Kaddýinn er í fyrstu útgáfu. Vellirnir eru teiknaðir eftir bestu gögnum sem við höfum, en kylfingar sem þekkja þá best eru heimamennirnir. Allar ábendingar eru vel þegnar: villur í teikningu vallar, holur sem spilast öðruvísi en áætlunin segir eða völl sem ætti að bætast við. Þær má senda á ritstjorn@golfid.is og við lögum það sem þarf. Klúbbar sem vilja koma ráðum sinna kylfinga inn í áætlanir á sínum velli geta haft samband á sama netfang.

KaddýinnLeikskipulagGolftól
Fréttabréf Golfsins

Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.

Aðeins fréttabréfið, ekkert annað. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt
  1. Heimsgolfið · Golfið í morgun

    Þrír vellir eiga að víkja fyrir einum á East Potomac

  1. Golf á Íslandi · Klúbbarnir

    Nesvöllur aðeins opinn félagsmönnum Nesklúbbsins