KlúbbarnirÓlafur Marel kominn í fullt starf hjá Nesklúbbnum
Nesklúbburinn hefur skipt verkum þjálfara í barna- og unglingastarfinu upp á nýtt fyrir veturinn. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir bætist í þjálfarahópinn og á að efla stelpugolfið.

Ólafur Marel Árnason er kominn í fullt starf hjá Nesklúbbnum. Hann hefur verið í þjálfarateymi klúbbsins síðustu tvö ár og er einn besti kylfingur hans. Í vetur sér hann um unglinga á aldrinum 13–18 ára og Stubbagolfið fyrir leikskólabörn. Jóhanna Lea, fyrrverandi klúbbmeistari Nesklúbbsins og landsliðskylfingur, tekur að sér stelpuhópana. Klúbburinn segist vilja fá fleiri stelpur til að æfa og koma hennar sé liður í því.
Síðasta vetur æfðu um 180 börn og unglingar hjá Nesklúbbnum og klúbburinn gerir ráð fyrir að þau verði fleiri en 200 í vetur. Því var verkum þjálfaranna skipt upp á nýtt þegar vetraræfingar hófust í lok október.
Guðmundur Örn Árnason þjálfar börn 12 ára og yngri. Steinn Baugur Gunnarsson íþróttastjóri hefur yfirumsjón með þjálfuninni, þjálfar afrekshópinn og meistaraflokkinn og sinnir keppniskylfingum í einkaþjálfun. Ungir kylfingar úr starfinu sem hafa leiðbeint á golfleikjanámskeiðum klúbbsins verða aðstoðarþjálfarar í vetur.
Kylfingar sem þú fylgir birtast efst á forsíðunni með nýjustu stöðu.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Lífið í golfinu · Íslendingar á samfélagsmiðlumNýtt
Sir Spilar golf er með 3,1 í forgjöf og púttar nánast alltaf út
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Úr klúbbunum: Nýja skýlið í Hraunkoti frátekið fyrir unga kylfinga Keilis
- Kennsla · LeikskipulagNýtt
Kaddýinn: leikáætlun fyrir hverja holu, reiknuð út frá þínum höggum
- Heimsgolfið · DP World TourNýtt
Abu Dhabi Championship: McIlroy, Reed og Chacarra fara síðastir út
- Lífið í golfinu · SvipmyndNýtt
Paige Spiranac vann eitt mót í atvinnumennsku áður en netið tók við
- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
McIlroy segir LIV hafa ætlað að ganga af Evrópumótaröðinni dauðri
